158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:48]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir þessa framsögu, það var margt áhugavert sem kom þar fram. Litlaus fjárlög; ég svona velti fyrir mér hverju þingmaðurinn átti von á sem væri ekki jafn litlaust, hvaða fleiri aðgerðum, þannig að ég hlakka til að heyra það frá þingmanninum hér á eftir hverju hún átti von á og hvað hún hefði viljað sjá. Ég er hjartanlega sammála því sem kom fram að við viljum stækka kökuna, alveg hjartanlega sammála, og við þurfum auðvitað að horfa líka á kökuna í heild sinni. Ef við tölum um það þá langar mig að fara aðeins yfir skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu vegna þess að það að um sé að ræða einhver tímamót í skattinnheimtu ríkisins er ekki sönn fullyrðing. Ef við förum til ársins 2014, eins og ég sagði áðan, þá eru skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 28,2%. Fyrir 2027 erum við í 23,9%. Fyrir árið 2015 erum við í 29,2%. Í ár, 2027, erum við í 23,9%. Ef við förum yfir í 2016 þá erum við í 27,7%. Svo hérna árið 2017 erum við í 23,7%, ég velti fyrir mér hver var fjármálaráðherra þá. Við erum sammála um að stækka kökuna en að hér sé um að ræða tímamótaskattinnheimtu þegar við erum að skera niður um 2 kr. á meðan við erum að sækja tekjur upp á 1 kr. — spurningin er þá í rauninni: Hverju átti þingmaðurinn von á? Og hvernig fær þingmaðurinn það út að það séu meiri skattar heldur en hagræðing í þessu fjárlagafrumvarpi?