158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:50]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hverju átti ég von á? Þegar ég notaði orðið litlaust hér þá var ég að vísa til orða hæstv. fjármálaráðherra sjálfs við fyrri fjárlögum og fjármálaáætlunum. En ég held að ég geti alveg verið sammála hv. þingmanni um að þessi fjárlög eru litrík, þau eru rosalega litrík. Mér bara líkar ekkert þeir litir sem þarna eru teiknaðir upp því þeir eru skattahækkanir. Þegar hv. þingmaður segist taka hér undir það að stækka kökuna þá spyr ég: Hvar í þessu fjárlagafrumvarpi eða aðgerðum þessarar ríkisstjórnar er hægt að segja að þessi ríkisstjórn sé að reyna að stækka kökuna? Í hverju? Í hvaða aðgerðum hefur verið fært eitthvað súrefni til atvinnulífsins svo þau geti framleitt meiri verðmæti og skilað þar af leiðandi meiru inn í ríkissjóð?

Virðulegur forseti. Ég hef ekki orðið vör við það heldur þvert á móti; ég hef bara orðið vör við það að hér séu hækkaðir skattar á fyrirtæki og fólk.

Virðulegur forseti. Ég er ekkert ein um það. Aðilarnir í atvinnulífinu eru þarna skýrt og klárt að tala um hversu mikil áhrif þetta er að hafa. Við þekkjum alveg umræðuna um sjávarútveginn en bara ýtum því alveg til hliðar, það mál er búið. Eigum við að tala um ferðaþjónustuna núna sem hefur blómstrað í kjördæmi hv. þingmanns? Hvað eru aðilar í ferðaþjónustu að segja núna? Eru aðilar í ferðaþjónustunni ánægðir með þessa ríkisstjórn og það sem hún hyggst gera? Nei, heldur betur ekki. Þeir hafa verulegar áhyggjur af því hvað mun gerast fyrir þær miklu fjárfestingar sem þeir hafa farið út í á síðustu árum vegna þess að þessi ríkisstjórn er að skrúfa fyrir súrefnið með aukinni skattheimtu. Það hlutfall sem á að taka í skattheimtu á ferðaþjónustunni er um helmingur af því sem þessi geiri skilaði í arðsemi á síðasta ári.