fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir andsvarið og verð að viðurkenna að ég gleymdi að svara spurningunni um hverju ég ætti von á í þessum fjárlögum.
Virðulegur forseti. Ég skal segja það, og ég skil eiginlega ekki af hverju ég átti von á því og af hverju ég held það enn þá, en það er einhver örlítill þráður í mér sem var enn þá á þá leið: Já, Viðreisn kennir sig svolítið við hægri, þau hafa talað fyrir því að þau vilji ekki hækka skatta. Þannig að ég átti ekki von á því að hæstv. fjármálaráðherra, sem er varaformaður Viðreisnar, kæmi hér inn með enn annað fjárlagafrumvarpið með svona ofboðslegum skattahækkunum á fólk og fyrirtæki. Og virðulegur forseti, af því við vorum bara að fara yfir atvinnulífið hérna áðan, fyrst var það sjávarútvegurinn og nú er það ferðaþjónustan, ég veit ekki hvað verður næst, en þá er þetta líka á almenningi í landinu eins og við höfum talað um varðandi útreikninginn á tekjuskattinum eða hvað heitir þetta … (Gripið fram í: Persónuafsláttur. ) — persónuafslættinum. Takk, hv. þingmaður.
Virðulegur forseti. Við tölum hér um hallalaus fjárlög og ég stend auðvitað með því. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess. Ég er líka sammála hv. þingmanni þegar hún segir að það sé mikilvægast fyrir heimilin í landinu, og reyndar atvinnulífið, að hér verði lægri verðbólga og lægri vextir. En hvað hefur gerst frá því þessi ríkisstjórn tók við? Það hefur gerst? Vaxtalækkunarferli sem var hafið í tíð fyrri ríkisstjórnar, eftir öll þessi áföll sem hv. þingmaður kom inn á, hélt aðeins áfram en um leið og þessi ríkisstjórn sýndi á spilin, um leið og fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar lá fyrir, hvað gerðist þá? Vextir fóru að hækka aftur. Nú erum við með háa vexti og háa verðbólgu og það er í boði þessarar ríkisstjórnar. Þegar talað er um aðgerðirnar, hvað er það sem m.a. olli þessari hækkun stýrivaxta síðast og hækkun verðbólgu? (Forseti hringir.) Það voru aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Ég er ekki að tala um hækkun á olíuverði, (Forseti hringir.) ég er að tala um gjaldskrárhækkanir, ég er að tala um vörugjöld, ég er að tala um bifreiðagjöld. Það ber öllum greiningaraðilum (Forseti hringir.) saman um þetta, öllum nema hagfræðingunum í þessari ríkisstjórn, sem vilja loka augunum fyrir raunveruleikanum.