158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:08]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir sína framsögu hér og langar að ræða aðeins við hann. Spurningu minni er beint að varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Nú er hann þriðji þingmaðurinn sem ég ætla að spyrja þessarar sömu spurningar og ég ætla að sjá hvort svörin komi fram. Hv. þingmaður talar um skattahækkunarfrumvarpið og mig langar að benda á að við getum ekki talað um krónur, við þurfum að tala um prósentur úr því að við erum að tala um heildarkökuna. Ég ætla aftur að fara yfir skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og mér líður eins og ég sé biluð plata en þetta eru bara staðreyndir málsins. Árið 2014, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn, voru skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 28,2%, árið 2015 voru þær 29,2%, árið 2016 voru þær 27,7% og árið 2017 — ég ætla aftur að minnast á hver var fjármálaráðherra þá — voru þær 23,7%. Nú erum við að tala um 23,9%. Hér erum við að skera niður 2 kr. á móti hverri 1 kr. Og svo að ég bæti aðeins við þá voru yfirhöfuð engar niðurskurðaraðgerðir í fjárlagafrumvörpum frá 2014–2022. Það var skellt á 1–1,5% flatri aðhaldskröfu í staðinn og engar aðgerðir voru til að minnka umsvif ríkisins. Vissulega var eitthvað að frétta eftir Covid en það er samt staðreynd að þær aðhaldsaðgerðir sem nú eru boðaðar eiga sér ekki hliðstæðu nema í kjölfar kerfishruns árið 2009 og svo í byrjun tíunda áratugarins. Hér erum við því að tala um að aðhald ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu í ár sé 0,79%, árið 2015 var það 0,17%, árið 2016 var það 0,03%, árið 2017 var það 0,04% og árið 2018 var það 0,18%. Hvaða aðgerðir leggur Sjálfstæðisflokkurinn til? Ef við byrjum á því.