158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Söndru Sigurðardóttur finnst gaman að leika sér að prósentum. Það er kannski ágætt að benda henni á það, ef 11 milljarðar eru ekki nógu skýrt, að það eru 55% af hagnaði ferðaþjónustunnar sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að taka í aukna skatta. Ég skal muna það næst að vera með prósenturnar. Hér er verið að tala um prósentur, hvert hlýtur markmið okkar að vera? Markmið okkar hlýtur að vera að stækka kökuna. Það hlýtur að vera aðalmarkmiðið. Og tillögur Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum, hverjar voru þær? Jú, þær voru að selja eignir, m.a. Landsbankann, greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrði ríkisins um 55 milljarða, að skera ríkið niður um 140–150 milljarða og skila því líka aftur í lækkun á sköttum og gjöldum. Þetta er leiðin sem hægt er að fara. Þetta er leiðin sem hægri menn fara. Ég hélt meira að segja að Viðreisn væri á þessari vegferð, a.m.k. er Viðreisn á þessari vegferð í Reykjavík. En þegar Viðreisn er hálfpartinn gengin í Samfylkinguna hér þá sér maður ekki muninn á því hvort maður er að tala við hv. þingmenn Viðreisnar eða Samfylkingarinnar. Ég skil Samfylkinguna, þau eru vinstri flokkur. Þau trúa á skattahækkanir, þau trúa því að ríkið og hv. stjórnmálamenn fari betur með fé en þeir sem afla fjárins. Það er eðli vinstri manna. En eðli Viðreisnar, ég hélt að það væri öðruvísi. Og koma hér upp og telja hér upp einhverjar prósentur. Jú, en erum við ekki sammála um að stækka kökuna og þá þurfum við að taka minni prósentu og fáum jafnvel meira; ef við tökum minni prósentu þá sköpum við fleiri tækifæri. En ef þú skattleggur meira þá drepur þú í dróma framtak, frumkvæði, atvinnusköpun og verðmætasköpun í landinu. Og ég hélt að það væri stefna Viðreisnar.