fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég er hundrað prósent sammála að við viljum stærri bita af kökunni. Mig langar að leiðrétta að það er alls ekki rétt og röng framsetning — það eru auðvitað erlendir ferðamenn sem greiða þetta, ekki fyrirtækin sjálf. Það er verið að horfa á að það séu ferðamennirnir sem greiði fyrir þetta. Mig langar að þakka kærlega fyrir þá útfærslu sem hv. þm. Jens Garðar Helgason kemur með hér, að skera niður um 150–170 milljarða. Ég heyri talað um niðurskurð, það er svo sem erfitt að útskýra hann og tilgreina. En það fyrsta sem kemur upp í huga mér er bara Liz Truss-leiðin og við vitum hvernig hún endaði. En mig langar bara aftur að minna á að við erum að skera niður 2 kr. fyrir hverja 1 kr. Aðhald í ríkissjóði er meira núna en hefur nokkurn tímann verið síðan 2014. Skatttekjurnar, þær eru líka minni núna en þær hafa verið í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Ég bara bið hv. þingmann að skoða þetta betur því að gögnin tala sínu máli alveg sama hvað hv. þingmaður segir.