fjárlög 2027.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir ræðuna. Það hefur mikið verið talað um að stækka kökuna. Það er kaka sem virðist hafa stækkað endalaust í tíð síðustu ríkisstjórnar og það er þessi gríðarlega viðhaldsskuld sem er kannski ekki kaka, það vilja fæstir taka bita af henni. Viðhaldsskuldin var áætluð um 680 milljarðar í skýrslu frá Samtökum iðnaðarins sem var gefin út á síðasta ári, þar af 265–290 milljarðar kr. í vegakerfið. Síðasta ríkisstjórn, þar sem í fjármálaráðuneytinu sat þáverandi formaður flokks hæstv. þingmanns, gerði ráð fyrir að 1,7% viðmið væri í fjármálastefnu þegar kæmi að hlutfalli gjalds af samgöngum, hvort sem útfærslan er kílómetragjald eða annað, miðað við verga landsframleiðslu. Hv. þm. Sandra Sigurðardóttir spurði áðan: Hvaða leiðir vill hv. þingmaður fara til að afla tekna til að sinna nauðsynlegu viðhaldi? Við getum auðvitað nefnt dæmi eins og vetrarþjónustu sem var verulega vanfjármögnuð en núna er búið að fullfjármagna í tíð þessarar ríkisstjórnar. Við getum nefnt samgönguáætlun sem var ekki lögð fram í tíð síðustu ríkisstjórnar, var lögð fram síðasta árið 2020, en var lögð fram núna og ber með sér verulega aukningu í fjárfestingu á innviðum. Þetta er einmitt eitt af því sem erlendir greiningaraðilar segja að sé lykilatriði í samkeppnishæfni Íslands. Þetta eru lykilatriði í verðmætasköpun, þ.e. innviðastyrking og innviðafjárfesting. Mig langar að vita hver afstaða hv. þingmanns er til þess að afla tekna fyrir þessa innviði.