fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir hennar fyrri spurningu. Viðhaldsskuldin? Að sjálfsögðu kom viðhaldsskuld þegar ríkið horfði upp á, ekki bara hrun flugfélags heldur kom Covid og síðan jarðeldarnir. Auðvitað eru allir sammála um það. Ég man eftir umræðum hér, þá var ég ekki á þingi en ég fylgdist með umræðum, og vildu flokkssystkini hv. þingmanns eyða meiri peningum og lausnin við atvinnuleysinu var að ráða þá alla hjá ríkinu. Þá voru hvatarnir til þess að eyða meira og sem betur fer var ekki farið eftir því. En hv. þingmaður spyr hvernig á að borga innviðaskuldina. Ökutækjaeigendur í dag borga meira en verið er að eyða í samgöngur. Það er staðreynd. Þannig að, hv. þingmaður, ríkisstjórnin er að eyða peningum í eitthvað annað. Hún er að eyða peningum í eitthvað annað en að láta allar tekjur af samgöngum renna í samgöngur. Það er staðreynd. Og það er nú bara þannig, virðulegur forseti, að þessi ríkisstjórn verður aldrei uppiskroppa með það að eyða annarra manna fé. Hugmyndaflugið í þeim efnum er óendanlegt, að eyða annarra manna fé sem er ekki til og þarf þá að sækja í vasa skattgreiðenda, sækja dýpra í vasa t.d. ökutækjaeigenda. Ég vil minna hv. þingmann á að í síðustu fjárlögum voru vörugjöld á ökutæki hækkuð um 7,5 milljarða, kílómetragjaldið var lagt á sem á núna að hækka um 16 milljarða. Sjáum við þess merki í samgönguáætluninni? Nei, samgönguáætlun er að meðaltali um 72 milljarðar á ári.