158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:20]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er nú þannig með tölur að þær geta verið mismunandi eftir því hver á í hlut. Ég bendi enn og aftur á að samkvæmt áætlunum síðustu ríkisstjórnar átti að hækka kílómetragjaldið um 7,5 milljarða. Það var dregið niður í 4 milljarða í þessu fjárlagafrumvarpi. Auðvitað þurfa gjaldstofnarnir einhvers staðar að vera. Það varð hrun í gjaldstofnum sem ríkið stendur frammi fyrir, m.a. vegna fleiri rafbíla og auðvitað þarf að taka inn í þessa mynd að fellt var niður, samhliða upptöku kílómetragjaldsins, töluvert af gjaldliðum sem neytendur greiddu fyrir við dæluna. Sá kostnaður hefur lækkað verulega. Þetta er auðvitað bara hluti af stóra samhenginu, stóru myndinni, (Forseti hringir.) og það er ekki hægt að láta eins og flokkur hv. þingmanns hafi ekki verið með neinar áætlanir um að bæta þessa gjaldstofna.