158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:22]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. stjórnarþingmenn — og ég þakka hv. þingmanni Rögnu Sigurðardóttur fyrir hennar seinna svar. Vandamálið er í rauninni, og það kristallast í þessum umræðum, að hér er verið að segja: Hvar eigum við að fá þessa peninga? Við þurfum að fá þessa peninga. Við erum að eyða meiru. Við þurfum að fá þessa peninga. Ríkið þarf að fá sitt, ríkið er að stækka og við þurfum að fá meira. Kæru landsmenn, kæru fyrirtæki. Hvar eru peningarnir? Við ætlum að taka meira. Það er aldrei horft inn á við og spurt: Gætum við kannski farið í eina góða megrun? Gætum við tekið á einhverju hjá okkur?

Varðandi kílómetragjaldið: Þegar það var sett á rafbíla var það til þess að koma rafbílum einhvern veginn inn í það að borga sinn hlut af samgöngukerfinu. En að bæta við 350.000 ökutækjum? Þar þurfti að ráða 30 manns í Skattinn til að eiga við kílómetragjaldið. Harakiri-ið sem það var fyrir bílaleigurnar og aðra að eiga við þetta. (Gripið fram í: Er enn.) — Og er enn. Þú tókst 350.000 ökutæki (Forseti hringir.) í staðinn fyrir að þetta hafi bara verið á dælunni og það voru fimm olíufélög sem sáu um að rukka þetta fyrir ríkið. En svo kemur náttúrlega á daginn að þegar þú ert kominn með kílómetragjaldið þá geturðu bara (Forseti hringir.) hækkað það eins og þú vilt. Og núna er það 16%, á nokkrum mánuðum á það að hækka um 16%. (Gripið fram í.)

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutíma sem er ein mínúta í síðari umferð.)