158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir hans fyrsta andsvar og fyrstu spurningu. Það er í rauninni verið að hreykja sér af því að rétt kippa fjárlögunum yfir núllið, sem er mjög viðkvæmt, 4,7 milljarðar. Ég veit að hv. þingmaður áttar sig á því hvað það er brothætt. En hverjir borga? Það er fólkið í landinu með hærri tekjuskatti, með því að fá minna í vasann, og fyrirtækin í landinu. Ég vil minna hv. þingmann á að ríkið er ekki beint að ganga fram með góðu fordæmi. Það eru ekki bara 5,2% hækkanir, það er verið að hækka komugjöld á sjúklinga um 100%. Það er dágott. Þá held ég að allir gætu bara verið þakklátir fyrir 5,2 þegar sums staðar er það 100%. Ég veit að hv. þingmaður gerir sér grein fyrir því að í flestum þeim sveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er við völd og sérstaklega þar sem hann er með hreinan meiri hluta eru gjaldskrárnar lágar og útsvarið með því lægsta. En ég vil samt benda á t.d. Ölfus og Reykjanesbæ, sem gekk fram núna um daginn og lækkaði gjöld og felldi niður gjöld, og Fjarðabyggð sem hefur fryst gjaldskrár og annað. Það sem ég hef áhyggjur af og ég held að hv. þingmaður hafi áhyggjur af líka er að ef ríkið ætlar að ganga fram með 5,2% þá muni það á endanum þýða að aðrir fylgja á eftir. Það er líka svolítið skrýtið að vísa veginn en fara hann ekki sjálfur. Það er svolítið ríkið: Dragið þið saman og haldið aftur af ykkur, en við þurfum okkar og ætlum jafnvel að taka meira en við þurfum.