fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Ég skil það þá þannig að þingmaðurinn og jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn væri til í þennan leiðangur, að það væri lögð einhver lína, bæði fyrir ríki og sveitarfélög. Þá er ég líka að tala um sveitarfélag eins og Kópavog sem hækkaði gjöld á fjölskyldur mjög mikið á síðustu misserum og Reykjavík sem hækkaði gjöldin á gamla fólkið um 70% um daginn. Hugsanlega væri gott fyrsta skref að draga það til baka eins og hefði verið bragur á. Einhver sveitarfélög, já, hafa verið að lækka gjöld á verktaka og það getur verið ágætt. En við erum ekki síður að tala um gjöld á fjölskyldur eins og leikskólagjöld, frístundaheimilagjöld og annað. Ég held nefnilega að lykillinn að einhvers konar sátt á næstu dögum og vikum sé breið samstaða, líka þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer með völdin.