158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:29]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir hans seinni spurningu. Það er gaman að fylgjast með því hvað er að gerast í Reykjavík núna. Hvað er að gerast í Reykjavík? Það er verið að hagræða í rekstrinum, það er verið að taka á rekstrinum. Það er stefnt að því, ef ég hef lesið það rétt, að ná a.m.k. 900 millj. kr. hagræðingu á ári í rekstrinum, 900 millj. kr. og þau stefna að því að gera enn betur bara með því að hagræða í rekstrinum. Það hefði maður viljað sjá hjá hæstv. ríkisstjórn, að byrja á að horfa inn á við.

Ég vil líka benda á, af því að hv. þingmaður spyr um sveitarfélögin, að í Ölfusi þar sem er hreinn meiri hluti Sjálfstæðisflokksins með 70% fylgi eru fyrstu 36 tímarnir í leikskóla fríir. Ef þú nýtir fullan dag þá kostar það rúmlega 17.000 kr. á mánuði. Þetta heitir að reka sveitarfélag og gera það vel.