fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég ætla að halda áfram með málefni sem hefur borið hér ítrekað á góma og ekki að ástæðulausu. Það er nú þannig að sjaldan er ein báran stök þegar kemur að aðför núverandi ríkisstjórnar að landsbyggðinni og atvinnulífinu, og þá ekki síst atvinnulífinu á landsbyggðinni. Ég held að markaðirnir hafi nú þegar svarað og lagt dóm sinn á það hvort þetta fjárlagafrumvarp er verðbólguhvetjandi eða ekki. Þeir svöruðu því í raun samdægurs. Varðandi þá umræðu sem hér hefur átt sér stað, um breytingu á virðisaukaskattsþrepi baðlóna, þá höfum við verið að sjá æ betur þá miklu segla sem þessi baðlón eru og hvatning til mikillar uppbyggingar með góðum áhrifum á sín nærsamfélög. Það er gríðarlega mikil uppbygging í gangi núna við Skógarböðin í Eyjafirði. Þar voru gerðar áætlanir áður en þetta fjárlagafrumvarp birtist og ég er ekki viss um að svo metnaðarfull áform hefðu orðið uppi ef aðilar sem þar eiga hlut að máli hefðu fengið að sjá inn í áætlanir þeirra sem nú fara með fjármál ríkisins. Jarðböðin í Mývatnssveit hafa verið nefnd, þau tóku til starfa ný og glæsileg nú í vor, 7 milljarða kr. framkvæmd. Gátu menn átt von á því að innan örfárra vikna frá þeirri opnun yrði ráðist með slíkum hætti að þessari starfsgrein? Það efast ég stórlega um. Böð sem hafa verið lengur í rekstri í núverandi mynd, eins og Sjóböðin á Húsavík eða Vök fyrir austan — í báðum tilfellum kemur jafnvel til álita að loka starfseminni hluta úr vetri. Ég velti fyrir mér hvaða tekjur ríkisstjórnin hyggst hafa af lokuðum jarðböðum eða lokuðum sjóböðum.
Þetta er allt á sömu bókina lært, frú forseti. Einhverjar forsendur eru settar inn í einhver reikniforrit sem gera engan veginn ráð fyrir viðbrögðum markaðarins, gera ekki ráð fyrir mannlegri hegðun og gera heldur ekki ráð fyrir því, til að mynda í tilfelli allra þessara baða, sjóbaða, jarðbaða, skógarbaða og allra þessara baða, að yfir háveturinn eru um 70–80% gesta í Vök til að mynda, og ég hygg að það sé ekki langt frá því í Sjóböðunum, Íslendingar og þetta er því skattur á fólk í nærsamfélaginu.
Mig langar að gera aðeins annað að umtalsefni, ég hef ekki heyrt neinn nefna það. Við fengum tölvupóst, allir þingmenn Norðausturkjördæmis, þar sem við vorum spurð út í hvernig stæði á því að selja ætti eða ráðstafa með öðrum hætti flugstöðinni við flugvöllinn í Aðaldal, eða Húsavíkurflugvöll. Nú þegar verið er að keppast við það af samfélaginu og nærsamfélaginu að fara í mikla uppbyggingu við Bakka í samstarfi við Landsvirkjun myndi þessi aðstaða þar leika algjört lykilhlutverk. Síðan er skemmst frá því að segja að viðbrögðin við þessum tölvupósti af hálfu þingmanna meiri hlutans voru engin, þ.e. það vissi enginn af þingmönnum kjördæmisins, hvorki úr meiri hlutanum né minni hlutanum, af því að þetta stæði til. Þingmennirnir eru greinilega ekki hafðir með í ráðum þegar verið er að teikna þetta upp.
En af því að tíminn líður svo hratt, frú forseti, langar mig að fara betur inn í umræðuna um kílómetragjaldið. Það hefur aðeins borið á því í þessari umræðu og m.a. komið fram í máli hv. þingmanns — afsakið, frú forseti, nafnið datt út, ég biðst forláts á því. (Gripið fram í.) Nei, það var ekki hv. þm. Sandra sem hélt því fram að það þýddi ekkert að vera með ... Ég þakka fyrir öll nöfnin sem dynja hér á mér. (JGH: Arna Lára Jónsdóttir.) —) Þakka þér fyrir, hv. þm. Jens Garðar Helgason. Hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir sagði að þetta væri nú samt bara ein króna. Það væri ekkert hægt að leika sér svona með prósentur, þetta væri í raun og veru bara ein króna. En þetta eru prósentur þó að þær lendi sem ein króna á lægsta flokkinn. Ef við skoðum til að mynda það sem mun sennilega hafa mest áhrif á landsbyggðina, sem eru stærri bifreiðarnar, flutningabifreiðarnar, þá eru þetta 2,22 kr. á 10–11 tonn, 2,59 kr. á 12–13 tonn, 3,13 kr. á 14–15 tonn og svo koll af kolli þangað til komið er yfir 31 tonn. Þá er talan orðin 7,18 kr. Og vöruflutningabifreið í fullri notkun, í vöruakstri milli landshluta — það má varlega áætla að hún sé keyrð um 100.000 km á ári. Margar þeirra mun meira en það, svo að þetta er varlega áætlað til að vera með málefnalegt innlegg. Það þýðir 718.000 kr. á ári á þessa einu bifreið. Svo heldur meiri hlutinn því fram, frú forseti, að þetta hafi engin áhrif; 718.000 kr. á eitt ökutæki á ári í vöruflutningum. Við getum velt fyrir okkur hvaða áhrif þetta kann að hafa til að ýta frekar undir vöruverð eins og kílómetragjaldið gerði strax í upphafi. Aðilar á markaði hækkuðu verð, þeir urðu að velta þessu út í verðlagið, þeir höfðu engan annan kost. Það svæði sem lengst er frá höfuðborgarsvæðinu er Norðausturland og Austurland ásamt Vestfjörðum — það eru gríðarlegir fiskflutningar frá þessu svæði og eins úr eldinu. Hvert einasta ökutæki sem fer þarna yfir 31 tonn, sem er reyndar frekar léttur bíll, fær 718.000 kr. aukalega á sig. Ef við förum hins vegar í fulllestaðan bíl með aftanívagni þá er talan mun hærri enda leggst gjaldið þá bæði á bílinn og aftanívagninn. Þetta er ekki rætt hér í salnum í dag. Nei, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir vill frekar tala um einu krónuna á minnsta bílinn því að þannig lítur dæmið út fyrir að vera tiltölulega saklaust. Það er það ekki. Þetta er gríðarleg skattahækkun á atvinnulífið og fyrst og fremst á atvinnulífið úti á landi. Þess vegna hóf ég mál mitt á frasanum: Sjaldan er ein báran stök. Þetta er það sem landsbyggðin hefur mátt búa við síðan þessi ríkisstjórn tók við. Þetta er það hugarfar sem landsbyggðin mætir frá þessari ríkisstjórn, mér liggur við að segja í allflestum málum en sérstaklega í þeim málum er varða tekjuöflun.
Síðan hefur dálítið verið rætt um hvernig eigi að sækja allt þetta fé, og þannig er þetta gjald réttlætt, til frekari innviðauppbyggingar í samgöngumannvirkjum. Þá er rétt að minna á það að bifreiðagjaldið, sem nú er líka hækkað um 5,2%, kílómetragjaldið, þegar það var sett á, veiðigjöldin, þegar þau voru sett á, hækkunin sem er sett á núna og ég gæti haldið áfram — þetta er allt rökstutt með þessum sama hætti. Við þurfum meira fé til að byggja upp vegina. Eitt hefur þó ekkert breyst, sem er hlutfallið. Það skiptir með öðrum orðum ekki alveg öllu máli hvað ríkið er að sækja mikið fé til að byggja upp vegi því að hlutfallið breytist ekki neitt. Það eina sem er að breytast er að það er verið að segja við atvinnulífið úti á landi, við einstaklingana og fjölskyldurnar sem reka sína einkabíla úti á landi: Þið verðið að borga meira. Við ætlum að vísu ekki að láta ykkur hafa hærra hlutfall af því sem við innheimtum, þið verðið bara að borga meira. Það er lausn þessarar ríkisstjórnar í þessum málaflokki og mér virðist í flestum öðrum.
Ég legg því til, frú forseti, eins og kom reyndar fram í máli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar hér áðan, að þessi ríkisstjórn horfi inn á við því að á einhverjum tímapunkti er skattheimta skaðleg. Ég hygg að hækkunin á baðlónin muni til að mynda reynast skaðleg. Ef fulltrúar meiri hlutans hér inni telja ekki að á einhverjum tímapunkti, á einhverjum skurðpunkti, verði of mikil skattheimta skaðleg, þá er næsta og eðlilegasta spurningin þessi: Því hækkið þið þetta ekki um 50%, ef þetta skaðar hvort eð er ekki landsbyggðina, atvinnulífið úti á landi eða heimilin úti á landi? Ef mat ykkar er það, kæru fulltrúar meiri hlutans, að þetta sé ekki skaðlegt, af hverju hækkið þið þetta ekki meira? Af hverju sóttuð þið ekki meira fé? Ég tek svo undir það sem komið hefur fram í þessari umræðu það sem af er degi: Þetta kemur mér ekki á óvart af hendi Samfylkingarinnar en Viðreisn markaðssetti sig með talsvert öðrum hætti.