fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans afbragðsgóðu ræðu. Það kom ekkert á óvart að hv. þingmaður myndi tala um og fara vel yfir þungaflutningana. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af kostnaðinum. Það er bæði kostnaður sem leggst á fyrirtæki sem starfa úti á landi við að koma vörum og öðru til sín en líka kostnaður sem leggst á fólk og fyrirtæki með hækkun á aðföngum, með hækkun á kílómetragjaldi. Það er alveg ljóst, og það er greinilega alveg komið á hreint að hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn skilja ekki samhengi á milli þess að hækka gjöld og skatta á fyrirtæki og halda að það muni ekki hafa neinar afleiðingar fyrir neytendur í landinu eða fólk í landinu sem nýtir þjónustu eða kaupir vöru. Ef þú hækkar flutningskostnaðinn stórkostlega þá mun hækka verðið á flutningskostnaði á rúmi sem þú kaupir í IKEA eða hvað sem það er.
Mig langar að fá kannski hv. þingmann til þess að aðeins að velta því fyrir sér og svara því hvaða áhrif hann telji að þetta muni hafa á fyrirtækin sem starfa úti á landi, þessar sífelldu hækkanir á flutningskostnaði, hvort sem það er þegar fyrirtækin senda frá sér vöru eða fá aðföng í sinn rekstur. Hvaða áhrif heldur hann að þetta muni hafa, m.a. í Norðausturkjördæmi?