158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:43]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurningarnar. Ég hygg að áhrifin á þungaflutningana og fyrirtækin úti á landi sem eru háð þeim, sem og náttúrlega á alla sem búa úti á landi því að öll erum við háð þungaflutningum — seríóspakkinn í Nettó kemur með einhverjum bíl, hann fellur ekki af himnum ofan — séu nokkuð fjölbreytt vegna þess að sum fyrirtæki eru þó í þeirri stöðu að geta velt verðlaginu yfir á almenning. Það er með þessa skatta eins og allflesta ef ekki alla aðra að það er almenningur sem borgar þá. En það eru þó fyrirtæki sem eru háð þessum þungaflutningum sem geta ekki velt vöruverði sínu á almenning. Ég nefni sem dæmi bara eldislax, silung sem þarf að flytja á markað, þarf að koma ferskum í flug. Sá fiskur er í harðri samkeppni við eldislax eða eldissilung annars staðar frá. Til allrar lukku þá skilst mér núna að Nasdaq sýni að það sé hækkun á verði á eldislaxi eftir að hafa verið talsvert lágt í langan tíma. En það breytir ekki því að fyrirtæki sem er statt til að mynda austur á fjörðum og þarf að koma fiski í flug á ekki gott með að velta þessari hækkun út í verðlag sitt í harðri samkeppni við erlenda aðila á markaði. Það er eins með starfsemina í Þorlákshöfn, það er eins með starfsemina í Öxarfirði, það er eins með starfsemina vestur á fjörðum; allir þessir aðilar eru í harðri samkeppni við erlenda aðila sem í langflestum tilfellum eru margfalt stærri en þeir, margfalt stærri. Ekki geta þeir velt þessu út í verðlagið, þannig að afleiðingarnar, hv. þingmaður, fyrir þessi fyrirtæki geta því miður orðið mjög alvarlegar.