fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans fyrra svar. Þá langar mig að kalla eftir hugleiðingu eða vangaveltum frá hv. þingmanni þegar við horfum núna upp á þetta skattafjárlagafrumvarp þar sem ríkið ætlar í rauninni ekkert að líta í eigin barm. Það sjá það allir að allar aðgerðir sem eru kynntar þarna, fækkun um 200 ríkisstarfsmenn og eitthvað svona — þeim fjölgaði um tæplega 1.000 á 12 mánaða tímabili núna — eru allt bara eitthvert smotterí, það er ekki verið að taka á einu eða neinu í rekstri ríkisins, það er ekki verið að skera neina fitu af. Eins og við höfum farið hér vel yfir og hv. þingmaður hefur farið vel yfir og eins aðrir þingmenn í stjórnarandstöðunni hafa farið vel yfir, þá er verið að leggja gríðarlega þungar byrðar á fólk og fyrirtæki í landinu ofan á þá 30 milljarða sem voru settir á fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Er það ekki í rauninni orðin okkar eina von að þeir þingmenn sem koma úr kjördæmum þar sem eru t.d. sterk baðlón, þar sem er öflug ferðaþjónusta, þar sem er um langan veg að fara — þá horfi ég á Suður-, Norðvestur- og Norðausturkjördæmi — verðum við ekki bara að halda í vonina um að þessir hv. stjórnarþingmenn standi upp og segi: Nei, hingað og ekki lengra? Við getum ekki tekið þátt í því að leggja þessar álögur á fyrirtæki í okkar kjördæmum, á okkar heimabyggð, okkar byggðarlög og okkar fólk. Er það ekki orðin okkar eina von þegar kemur að þessu skattafrumvarpi?