fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og fyrir góðar umræður hér í dag. Við erum að hefja leika á því að ræða líklega stærsta mál þessa hausts, þ.e. fjárlögin, og það skiptir miklu máli að við náum vel utan um þau mál. Það kostar að reka samfélag og það kostar enn meira að reka samfélag á yfirdrætti og hér er einfaldlega tilraun eða viðleitni til að snúa við viðvarandi hallarekstri síðustu áratuga. Það skiptir ofboðslega miklu máli að ná utan um uppsafnaðan halla. Við hljótum að geta verið sammála um það. Síðan er það hvernig við komust að þeirri niðurstöðu hvernig það er gert. Það eru ekki margar leiðir í leikbókinni þegar kemur að ríkisfjármálunum, það er annaðhvort að hagræða eða afla tekna. Hér er farin sú leið að fara í hlutfallið tveir á móti einum. Það er verið að hagræða um 44 milljarða og afla tekna upp á 22 milljarða. Að tala hér um að þetta sé bara eitthvert skattahækkunar fjárlagafrumvarp er nú hálfómálefnalegt að mínu mati vegna þess að það er sannarlega verið að draga saman um 44 milljarða.
Hér áðan var talað um samdrátt hjá Reykjavíkurborg. Hv. þm. Jens Garðar Helgason talaði um að Reykjavíkurborg væri að skera niður 900 millj. kr. hér erum við að tala um 44 milljarða, ég vil halda því til haga. En mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í hugmyndir og fá umræðuna á aðeins uppbyggilegri nótur. Ef hv. þingmaður væri hér í stóli fjármálaráðherra og ætlaði sér að skila hallalausum fjárlögum vegna þess að við erum að undirbyggja stöðugleika til lengri tíma, hvað myndi hann þá leggja til?