158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:52]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir hennar spurningar. Áður en ég svara þér finn ég mig knúinn til að leiðrétta þær tölur sem hv. þingmaður er með sem býr til þennan einkennilega frasa, tveir á móti einum, þar sem gengið er út frá í tölunni 22 milljarðar en samtals auknar tekjur sýnist mér vera 37,5 milljarðar. Þannig að þessi frasi sem á að keyra hér á í dag og er búið að gera það sem af er dagsins, ég fæ hann engan veginn til að ganga upp þegar ég skoða yfirlitið yfir hækkanirnar.

Síðan kemur svona útópískari og miklu skemmtilegri spurning: Hvað myndi sá sem hér stendur gera ef hann væri fjármálaráðherra? Ég myndi byrja á því að kalla til baka þær hækkanir sem núna eru á ferðaþjónustuna og ökutækin því þar er löngu komið nóg. Svo myndi ég fara í það verk að vinda ofan af kílómetragjaldinu í heild sinni eins og það kom fram í desember síðastliðnum og varð að lögum eftir áramót, það myndi ég byrja á að gera. Svo færi ég í að skoða hvaða stofnanir eru absalút nauðsynlegar í þeirri mynd sem þær eru í núna. Hvaða stofnanir þola verulegan niðurskurð, og þá er ég að meina verulegan, ekki einhvern svona skraut niðurskurð. Svo færi ég í að skoða hvort það séu mögulegar stofnanir inni í kerfinu okkar sem við þurfum ekki að hafa. Við höfum í gegnum tíðina sameinað stofnanir og ætluðum að ná fram hagræðingu með því. Oft og tíðum hefur sú hagræðing ekki raungerst því það hafa verið sameiningar þar sem fólk hefur haldið störfum sínum, starfsréttindum, veikindaréttinum, námsréttindum og öðrum réttindum, þannig að oft hafa þetta verið svona sýndaraðgerðir. Ég held að þetta verði ekkert gert og sú erfiða ákvörðun bíður þess, hvort sem það er sá sem hér stendur eða einhver annar, að við þurfum að fara að skoða alvöru niðurskurð. Við getum ekki ætlað fólkinu í landinu að bæta endalaust á sig álögum til að standa undir óráðsíu hins opinbera.