158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:56]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningarnar og geri nú fyrir hv. þingmann það sem hv. þingmenn, því miður, upplifa kannski ekki oft þegar þeir eru að spyrja hér samþingmenn sína sem hafa verið í stuttum ræðum og svara bara mjög skýrt og beint. Ég skal koma með eitt mjög gott dæmi. Við getum lagt af þessa hækkun á kílómetragjaldinu, sleppt þessum álögum á fólk og fyrirtæki á landsbyggðinni og tekið RÚV niður. Við getum rekið eina útvarpsstöð, sem má heita áfram Rás 1, eins og hún hét í upphafi, sinnt þar lögbundnum hlutverkum Ríkisútvarpsins með því að sinna menningu og mér liggur við að segja meintu öryggishlutverki því það eru nú aðrar leiðir í dag sem virka kannski orðið betur en útvarpið. Þá er ég búinn að rétta hv. þingmanni meiri pening heldur en hv. þingmaður hyggst sækja í þessar miklu hækkanir í kílómetragjaldinu, þannig að þetta er allt hægt. Það þarf hins vegar að hafa pólitískan kjark til að gera þetta og ég veit vel, það vita allir sem hafa setið í þessum sal síðustu ár og áratugi, að það að fara í þennan ræðustól hér og tala með þessum hætti gagnvart ríkisútvarpi allra landsmanna er ekki til vinsælda fallið hjá viðkomandi miðli og auðveldar þeim sem hér stendur ekki að standa í pólitík. Þess vegna held ég að í gegnum tíðina hafi þessi sæti hér heilt yfir meira og minna verið skipuð fólki sem hefur ekki lagt í þennan slag. Svona slagir eru hins vegar margir í boði inni í kerfinu. Ég nefni sem dæmi stofnun Mannréttindastofnunar Íslands, úttekt á henni; hvað fer mikið í hana, hverju nákvæmlega hún skilar, hvað af því er lögbundið o.s.frv. Svona gæti ég rakið mig í gegnum alla keðjuna og treysti mér til að finna nógu marga milljarða til að láta þessar skattahækkanir sem hér eru boðaðar allar falla niður.