158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:58]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Við stöndum hér að ræða fjárlög fyrir árið 2027, vegferð sem byrjaði í vikunni á því að forláta núll var tússað af mikilli fagmennsku á töflu á enn einum blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin, eins og við vitum, leggur talsvert mikið upp úr blaðamannafundum sínum og orðaleikjum, frösum og öllu því sem hægt er að tína undir hatt ásýndarstjórnmála og er því miður að mínu viti farið að taka of mikið pláss í þeim mikilvægu verkefnum sem við störfum við hér. Sælla minninga, fyrir ári síðan, var ekki tússað neitt á neinar töflur en þá átti að boða hér verðmætasköpunarhaust sem fór nú lítið fyrir en við fundum meira fyrir verðbólgu- og vaxtavetri. Ásýndarstjórnmálin skila sínum árangri oft, þau geta verið sniðug og það getur alveg verið gaman að því, frú forseti, kannski óþarfi að vera of leiðinlegur hérna, en vandamálið við ásýndarstjórnmál er að á einhverjum tímapunkti missir þú traustið, ef allt það sem þú ert að gera er of oft smættað niður í frasa og einhvers konar leikþætti sem fólk smám saman missir traustið á.

Og af hverju er ég að ræða þetta hér? Að mínu viti, frú forseti, er það eina sem skiptir máli varðandi það efnahagsástand sem við búum við núna, að það ríki traust til ríkisstjórnarinnar um hennar vegferð og hvernig hún ætlar að halda á hinu, jú, víðfræga plani, sem við höfum ekki séð neinn árangur af hingað til. Það er nefnilega þannig, frú forseti, sama þó að þú stillir öllu upp með miklu glimmeri og fallegum frösum; ef fólk trúir því ekki að það sem að er stefnt eða alla vega það sem er sett í þennan góða búning muni ekki raungerast, þá í þessu tilfelli mun það ólíklega raungerast. Það er þannig með þau fjárlög sem við erum að ræða núna að markaðurinn, hinn hlutlausi markaður, sem á allt undir því að reyna að lesa rétt í stöðuna og er ekki með neinar aðrar skoðanir í málinu heldur en beinharða fjárhagslega hagsmuni og er að lesa í framtíðina, tók þetta plagg og sagði: Nei, þetta mun auka verðbólgu.

Þetta er áhyggjuefni, frú forseti, því þó að það sé góðra gjalda vert að ætla að skila hallalausum fjárlögum, þá er hér undir miklu stærri mynd. Hér er undir það risastóra hagsmunamál allra heimila og allra fyrirtækja í landinu að ná niður verðbólgu og ná niður vöxtum. Það er stóra málið. Og vissulega geta hallalaus fjárlög í réttum aðstæðum aðstoðað við það. En ef sama plagg er metið svo af hlutlausum aðilum að það muni auka verðbólgu, að hverju er þá nákvæmlega stefnt hér, frú forseti? Mér finnst það ekki alveg skýrt.

Það er frægt að fyrir kosningar, því miður, sögðu forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar mjög skýrt, eins skýrt og hægt er: Við munum ekki hækka skatta. Við munum ekki hækka skatta á vinnandi fólk, venjulegt fólk, lítil og meðalstór fyrirtæki. Við munum ekki hækka skatta. Hæstv. forsætisráðherra var tíðrætt í stefnuræðu sinni hér í gærkvöldi að þessi ríkisstjórn hefði gefið loforð og efnt loforð, loforð gefin, loforð efnd, eins og hún orðaði það. Ja, en þau hafa svikið þetta loforð, þetta mjög skýra loforð sem var gefið fyrir kosningar um að hækka ekki skatta var svikið um leið og þau settust í þessa stóla og þau eru enn að svíkja það. Og þá ríkir ekki traust til ríkisstjórnarinnar. Markaðurinn treystir ekki þeim fjárlögum sem er búið að leggja fram. 85% aðspurðra treysta ríkisstjórninni ekki fyrir að halda á verkefni efnahagsmála.

Ég heyri hér í umræðunni í dag, frú forseti, að hv. stjórnarliðar fara mikinn um að hér sé verið að skila hallaleysi í fyrsta sinn í áratug. Mér finnst það nú kannski ívið mikið í lagt með orðinu áratug, svo það sé sagt. Ríkissjóður var reyndar hallalaus árin 2016, 2017, 2018 og ég vil taka fram, frú forseti, að það var ekki áætlun um hallaleysi. Þetta var hallaleysi. Ríkissjóður var hallalaus 2016, 2017, 2018. Og svo kemur vissulega 2019. Hvað gerðist 2019? Man það einhver? Jú, eitt stykki risastórt flugfélag með öllum sínum afleiddu áhrifum hvarf, fór. Það var auðvitað áfall sem þurfti að bregðast við, risastórt áfall. En hvað gerðist svo árið á eftir? Man það einhver? Jú, heimsfaraldur Covid, enn þá stærra áfall. Og svo árið eftir kom enn þá stærra áfall og svo enn þá stærra áfall. Og ég er að nefna þetta hér því mér finnst með ólíkindum að heyra háttvirta stjórnarliða ræða um, jú, vissulega uppsafnaðan halla eins og hér hafi ríkisstjórnin verið bara einhvern veginn að búa til einhverjar glimmerskreyttar, demantsskreyttar jólaskreytingar eða eitthvað. Ríkisstjórnin var að bregðast við áföllum sem enginn gat séð fyrir. En ríkisstjórnin sem þá var, var komin á rétta leið, var búin að rétta af kúrsinn. Vextir voru að lækka, verðbólga var á niðurleið þangað til að ný ríkisstjórn, núverandi hæstv. ríkisstjórn, tók við stjórnartaumunum og breytti um kúrs í vonda átt.

Ég vil bara taka þetta fram í samhengi hlutanna hérna, frú forseti, því það er ekki maklegt hvernig er leyft sér að tala um að þessi halli síðastliðin tíu ár, sem er í fyrsta lagi bara ekki rétt, hafi komið fram af engu.

En nú á að ná fram hallaleysi, sem er gott og vel, en það á að gera það svolítið á hnefanum — hvað sem það kostar. Og hverjir eiga að finna fyrir þeim hnefa? Ferðaþjónustan. Ferðaþjónustan sem hélt í sér lífi í gegnum heimsfaraldur og alls konar krísur, búin að standa sig vel, er með mikla fjárfestingu, fjölda starfa. Hún er núna svartipétur í augum ríkisstjórnarinnar þar sem má sækja meira fé. Bankaskatturinn. Nóg til, segja hv. stjórnarliðar, nóg til, í engu samhengi við samkeppnishæfni eða afleidd áhrif af bankaskatti. Hvað gerir bankaskattur? Hver borgar hann að lokum? Auðvitað venjulegt fólk. Fyrir utan að þrýsta upp vöxtum sem ég hélt að væri svo gott sem óumdeilt.

Við ætlum ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Hver einasti launamaður í landinu mun borga hærri skatt vegna breytinga á persónuafslætti. Hver einasti launamaður í landinu í öllum skattþrepum, líka hinu lægsta. Allir launamenn á landinu munu borga hærri skatt. Krónutölugjöldin: 5,2%, meira en tvöfalt meira en verðbólgumarkmið Seðlabankans. Ég heyri alveg sjónarmið hæstv. ráðherra um að ef þessi krónutölugjöld eiga að gera það sem þau eiga að gera þá megi þau ekki rýrna. Nei, en hvaða skilaboð eru þetta til sveitarfélaganna? Hvaða skilaboð eru þetta inn í kjaraviðræður í ofboðslega viðkvæmu umhverfi? Ætlar ríkið að segja: Nei, við þurfum að passa upp á okkar tekjustofna, algjörlega burt séð frá afleiddum áhrifum þeirra skilaboða í þessu viðkvæma umhverfi — sem snýst um hvað, frú forseti? Jú, samhengi hlutanna. Og það er góðra gjalda vert að ætla að skrifa núll á einhverja töflu og ná fram hallalausum fjárlögum. Já, já, í réttum aðstæðum gæti það verið fínt en ekki sama hvað það kostar, ekki sama hvaða afleiðingar það hefur.

Við ætlum ekki að hækka skatta, frú forseti, sögðu þau. (Forseti hringir.) Ég segi: Loforð gefin, loforð svikin.