158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:09]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hreinskilna ræðu. Það er greinilegt að hv. þingmaður, talsmaður Sjálfstæðisflokksins hér, telur að það sé ófært að skila hallalausum fjárlögum og að þetta frumvarp sé einhvers konar vandræðabarn. Þessi hallaleysisviðkvæmni sem er komin hér fram — ég tel að hv. þingmenn ættu að endurskoða afstöðu sína til hennar því að við höfum hér að flestu leyti mjög góðar ytri aðstæður og það væri þarft að fá hér eitthvað betra, hvað á að segja, púkk í umræðuna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað niðurskurð, það væri á ríkisútgjöldum, það væri t.d. gott að fá hér hvaða útgjöld menn vilja skera niður á þeim bænum, eru það framlög til hjúkrunarheimila, framlög til ellilífeyris? Það kom fram hér fyrr á árinu að menn teldu að það væri of vel í lagt með þá hækkun sem er boðuð nú í þessu fjárlagafrumvarpi, það væri bara mjög þarft. Ég hef t.d. bent á fyrr í umræðunni að það væri hægt að nýta þær aflaheimildir betur sem eru gefnar út, m.a. helmingurinn af öllum ufsaafla er ekki veiddur. En viðkvæmnin fyrir þessu markmiði, mér finnst hún sérstök í ljósi þess að það eru að mörgu leyti mjög góðar aðstæður. Við erum að fá góð verð fyrir útflutningsafurðirnar okkar, hvort sem það er úr fiskinum eða stóriðjunni, aukið eldi, þannig að það er bara margt hagfellt og til að glíma við þau áföll sem hún nefndi í ræðu sinni væri óráð að halda áfram að vera með halla á ríkissjóði. Við eigum að sameinast um það markmið að ná endum saman.