fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir andsvarið. Mér þykir áhugavert að heyra hv. stjórnarliða nálgast þessa umræðu á þann veg að annaðhvort þurfi að hækka skatta eða skera niður og þá hvar. Það er líka til önnur leið sem gengur stundum undir heitinu að stækka kökuna. Ríkisstjórnin sem var á árunum 2013–2023, um það tíu ára skeið, lækkaði t.d. skatta, lækkaði skatta um rúmlega 300 milljarða fyrir fólkið í landinu, 300 milljarðar sem fólkið í landinu gat setið eftir með af fjármagni í sínum vösum. Minnkaði þetta tekjur ríkissjóðs? Nei, það gerði það nefnilega ekki. Þetta er hugmyndafræði hægrisins gagnvart því hvernig er hægt að reka ríkið sem best; að gefa fólki sem mest frelsi til þess að fá hugmyndir, vera duglegt og skapa störf, gera allt þetta. Öll þessi afleiddu áhrif stækka kökuna þannig að við getum t.d. sett meira í velferðarkerfið.
Þetta er ein hugmyndafræði sem mér finnst skrýtið að heyra af, sérstaklega þar sem Viðreisn er nú einn flokkanna í þessari ríkisstjórn, að það er einhvern veginn annaðhvort að hækka skatta eða skera niður. Þetta er miklu stærri mynd en svo að það sé hægt að smætta hana niður í eitthvað svona einfalt. En til að svara spurningunni beint þá hvet ég hann til að skoða efnahagstillögur okkar Sjálfstæðismanna þar sem t.d. kemur fram að það sé hægt að selja banka, greiða niður skuldir, spara vaxtagjöld, sameina stofnanir, selja nokkrar þeirra, ég nefni t.d. Póstinn, ég nefni ÁTVR, ég nefni ýmislegt. Ríkið má horfa aðeins meira inn á við, hvar er hægt að gera betur, nýta meiri gervigreind o.s.frv. Það er margt hægt að gera. En svar þessarar ríkisstjórnar er: Hvar er borð fyrir báru einhvers staðar úti í atvinnulífinu þar sem hægt er að rukka örlítið meira áður en við byrjum á því?