fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir svarið en bendi henni á að það frumvarp sem hér er til umræðu kemur hvort tveggja með tillögur um að spara, það er fækkun ríkisstarfsmanna um 1% og það ætti að vera kostur á því því að það kom fram að á síðasta áratug hefur þeim fjölgað um 25%, ef mark má taka af tölum frá Byggðastofnun, og mest þá á því tímabili þar sem Sjálfstæðisflokkurinn réði ferðinni.
En af því að verið er að ræða um að stækka kökur þá vil ég einnig benda á að ef einhver þingmaður hefur einmitt bent á það hvernig við megum stækka kökuna þá er það sá sem hér stendur. Ég nefndi ufsa, þetta eru veiðiheimildir sem hafa verið gefnar út en hafa ekki verið nýttar. Mér finnst það vera mjög sérstakt og það væri mjög gott ef hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eru talsmenn þess að nýta hlutina, kæmu með mér í umræðuna um að gera betur hvað það varðar. Mér finnst það blasa við að þarna getum við gert betur. Þarna getum við sameinast og ég hlakka til þeirrar vinnu sem mun fara fram í fjárlaganefnd um það að fara yfir tillögur, hvar við getum gert betur og mögulega taka tillit til þeirra sjónarmiða sem þar sem koma fram mögulega málefnalegar ábendingar um að það sé verið að taka of mikið af einhverjum liðum. Það er rétt að fara yfir hlutina og ég skora á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að gera slíkt hið sama, fara einmitt yfir svona hluti þar sem menn eru ekki að nýta þær heimildir svo árum skipti, t.d. í ufsanum, heldur að láta hann liggja óveiddan í sjónum.