158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:16]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans seinna andsvar. Mig langar að byrja á því sem hann endaði á varðandi vinnu fjárlaganefndar. Ég ætla að leyfa mér að taka undir og það gleður mig að heyra alla vega þann tón, svo ég sé nú kannski ekki að hafa rangt eftir, um að nefndarmenn líti svo á að þeir muni leggjast yfir þetta plagg, þetta frumvarp, því að við skulum þrátt fyrir allt ekki gleyma því, ekki það að ég veit að ég hafi staðið nokkrum sinnum í þessari pontu undanfarin tæp tvö ár og kannski reynt að minna á það, að það er þingið sem á lokaorðið um það sem kemur frá ríkisstjórninni.

Ég tek undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að fjárlaganefndarvinna og þeir þingmenn sem þar sitja, sem fá allar umsagnirnar, athugasemdirnar, gestakomurnar beint í æð og fá oft meiri heildarsýn á verkefni heldur en kannski kemur frá ráðuneytinu, með fullri virðingu fyrir ráðuneytinu og ég efast ekki um að þar séu allir að gera sitt besta — við erum ekki bara tvívíð hérna í þinginu og ég bara fagna því. Ég fæ þó að enda á því sem ég byrjaði mína ræðu á: Það getur verið aldeilis góðra gjalda vert og alveg hægt að hrósa fyrir það eitt og sér að stefna að 0 kr. í halla en það verður að vera í einhverju samhengi hlutanna. Ef ég skil hv. þingmann rétt lítur hann svo á að það sé hans verkefni og þeirra í hv. fjárlaganefnd að rýna þetta með það heildarsamhengi í huga hvað raunverulega skiptir fólkið í landinu máli, hvað það er raunverulega sem skiptir mestu máli að verði niðurstaðan úr þessari vinnu, og ég bara fagna því.