158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Nú eru nokkrir dagar búnir á þinginu og við erum að ræða eitt stærsta mál ríkisstjórnarinnar og maður skyldi ætla að hún væri stolt af því sem hún er að leggja fram. Engu að síður er ég búin að sitja hér í salnum og bíða ansi lengi eftir einhverjum stjórnarliða svo að ég geti spurt viðkomandi út í fjárlögin, einhvern sem styður þau. Ég veit vissulega að hér áðan voru einhverjir — ráðherra virðist farinn í felur, hann er hættur að vera í andsvörum, þannig að ég verð að fá að beina spurningu til hv. þm. Hildar Sverrisdóttur sem hélt prýðisræðu. Ég tel að mögulega gæti hún hjálpað mér að ná utan um þessa leikjafræði sem mér sýnist vera í gangi um hallalaus fjárlög. Nú liggur það fyrir að árið 2026, þetta ár, voru fjárlög vegna þess með útgjaldaaukningu, meiri útgjöldum en nokkur önnur ríkisstjórn hafði boðað. Núna vitum við að það stefnir í að það verði yfir 30 milljarðar í viðbót á útgjöldum. Það er því eiginlega alveg útilokað að það verði hallalaus fjárlög. Við vitum líka að hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn Flokks fólksins hafa boðað hér jólabónus aftur. Hann er ekki inni í þessum fjárlögum.

Þannig að spurning mín er þessi: Er eitthvað að marka þessa áætlun eða er þetta bara blek á blaði til að geta sagst hafa lagt fram hallalaus fjárlög? Ég hjó eftir því, sem hv. þingmaður fór yfir hér áðan, að í ríkisstjórnartíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar voru hallalaus fjárlög. Er eitthvað að marka þetta, að mati hv. þingmanns?