158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:25]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar. Því miður held ég að hægt sé að fullyrða að engin ríkisstjórn á Íslandi hafi viðhaft viðlíka ásýndarstjórnmálaáherslu eins og núverandi hæstv. ríkisstjórn. Ég ætla að leyfa mér að segja, því miður — þó að ég skilji að við erum öll í pólitík og það er alveg sjálfsagt og oft gaman að því að vera sniðugur og skemmtilegur jafnvel — en þegar ásýndin er farin að snúast kannski fullmikið um ja, eiginlega hreinar og klárar blekkingar, þá kannski kárnar gamanið. Það er auðvitað ekkert í lagi og ég þarf ekkert að rekja þessi dæmi sem hv. þingmaður gerði varðandi biðlistana. Ég tek undir að hér er ekki verið að segja alveg satt. Er hægt að segja að hér sé verið að ljúga? Ég kannski treysti mér ekki til þess. En er verið að segja alveg satt? Nei, það er ekkert verið að segja alveg satt. Við sáum þetta í upphafi kjörtímabils varðandi hjúkrunarrýmin, þar sem var komið og klippt á borða. Það er ekki mjög erfitt að klippa á borða. Það tekur um hálftíma og það eina sem þarf eru ein skæri og góðir skór. Maður myndi einhvern veginn halda að það yrði tekið fram heiðarlega að að sjálfsögðu hefði þetta miklu lengri aðdraganda en bara þessar nokkrar vikur sem núverandi ríkisstjórn hefði verið við völd. En nei, það var bara vídeó eftir vídeó: Það skiptir máli hver stjórnar. Við látum verkin tala. Það hefur ekkert gerst í mörg ár en núna er allt að gerast.

En ég ætla að leyfa mér að svara, hv. þingmaður, ég ætla að leyfa mér að segja: Allt viti borið fólk sér í gegnum svona málflutning, (Forseti hringir.) allt viti borið fólk sér í gegnum svona. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að láta af þessum leikaraskap.