fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég held að það sé orðið ljóst að ég er ekki hrifin af verkum þessarar ríkisstjórnar og það er óhætt að segja að það sé komin mynd á það hvernig þessi ríkisstjórn starfar. Núna erum við að ræða þriðja fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar. Það fyrsta fengu þau í arf frá fyrri ríkisstjórn. Vissulega var það ekki ríkisstjórn sem ég var ánægð með hversu mikið jók útgjöld en eins og þau hafa sjálf bent á var stór hluti þess kannski ástæður sem kröfðust þess að auka útgjöld. Svo er hægt að deila um hvort það hefði mátt stoppa fyrr. Þessi ríkisstjórn er ekki að eiga við það sama. Það fjárlagafrumvarp sem hún fékk í arf taldi hún alla vega nógu gott til að breyta engu. En hvað gerðist? Hvað kom í ljós? Hvað kom á daginn? Jú, eftir árið jók þessi ríkisstjórn útgjöldin um 45 milljarða frá frumvarpi fyrri ríkisstjórnar, þ.e. árið 2025, fyrsta heila ár þessarar ríkisstjórnar, vann hún eftir fjárlagafrumvarpi fyrri ríkisstjórnar nema hún bætti um betur, um 45 milljarða. Þetta er sama ríkisstjórn og segist vera að taka til, segist vera að gera hlutina öðruvísi, en orð og efndir fara ekki saman. Og hvað kom næst? 2026 voru fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar sem hún samdi sjálf og þá fengum við að sjá mestu útgjaldaaukningu sem nokkur ríkisstjórn hefur boðað fyrr og síðar. Útgjöldin jukust um 143 milljarða. Og hvað sjáum við fram á núna? Það dugði ekki til. Það dugði þessari ríkisstjórn ekki því að nýjustu fréttir benda til þess að útgjöldin muni aukast um rúmlega 30 milljarða til viðbótar, þannig að hallinn sem átti að vera 28 milljarðar verður yfir 60 milljörðum miðað við áætlanir. Þetta er ríkisstjórn sem segist vera að taka á málum, segist vera að borga niður skuldir.
En hvað er sagt og hvað er satt? Það sem er satt er að skuldir munu aukast á næsta ári. Hæstv. fjármálaráðherra kom hér áðan í andsvar og fór yfir að það væru ástæður fyrir þessu öllu og auðvitað að hans mati ekki ástæður sem ríkisstjórnin réði við. Þau væru bara að borga meira út af hærri verðbólgu. En af hverju erum við hér í hærri verðbólgu? Jú, vegna þess að þetta er ríkisstjórn sem gat ekki hamið sig í útgjaldaaukningu og hækkaði krónutöluskatta umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Það var það sem gerðist í fyrra og það var það sem allir greiningaraðilar og allir aðrir bentu á og sýndu fram á með gögnum að fór beint í að auka verðbólguna. Engu að síður virðast hagfræðingarnir tveir í ríkisstjórninni vera einu hagfræðingar landsins sem segja að þetta hafi ekki haft nein áhrif á verðbólguna, bara utanaðkomandi þættir. Þetta er allt saman einhvers konar, ég veit það ekki, en eins og ég segi: Það er eiginlega sama hvað er sagt, það er ekkert að marka það.
Við sjáum það líka með allar skattahækkanirnar. Það er talað um leiðréttingar, alls konar — ég man ekki öll þessi nýyrði en þau nota ekki orðið skattahækkanir, eins og þá sé skárra að svíkja loforðin um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Það eru loforð sem var löngu búið að svíkja og núna erum við komin inn á þriðju fjárlögin, og hvað gera þau? Þau koma hér í fréttir og segja að þau séu að taka til og draga úr útgjöldum á meðan staðreyndin er sú að í þessu fjárlagafrumvarpi sem við ræðum eru þau að auka útgjöld um 80 milljarða. Að teknu tilliti til verðlags eru þau samt að auka útgjöld um 20 milljarða. Ríkisstjórnin sem mætti hér með einhverja skrautsýningu og teiknaði stórt núll á blað til að ná hallalausum fjárlögum gat ekki stillt sig um þessa útgjaldaaukningu og fyrir vikið er hún að hækka skatta verulega.
Þau segjast vera að draga úr, og nú skulum við aðeins fara aftur yfir hvað er sagt og hvað er satt, og að þetta séu aðhaldssöm fjárlög. Hvað meina þau með því? Aðhald frá fyrri áætlunum? Þetta er augljóslega ekki aðhald í útgjöldum því að þau eru að aukast. Er þetta aðhald frá þeirra eigin áætlunum eða er þetta minni aukning? Er þetta allt í hlutfalli af vergri landsframleiðslu og er þá eðlilegt að Covid-árin hafi verið einhvers konar nýtt gólf? Er þetta ekki einmitt tækifæri fyrir þessa ríkisstjórn til að draga verulega úr útgjöldum eftir svona hremmingar eins og við höfum gengið í gegnum á síðastliðnum árum? Svo er talað um að þetta aðhald sé 44 milljarðar. Við skulum átta okkur á því að þetta heitir forgangsröðun. Þetta heitir ekki aðhald. Þau eru að bæta í sums staðar og mögulega draga úr annars staðar en lokaniðurstaðan er aukin ríkisútgjöld, þannig að þetta aðhald er bara þeirra forgangsröðun. Forgangsröðunin er meira og minna bókhaldslegs eðlis. Nýi Landspítalinn, þar sem er sagt að eigi að draga niður hluta af þessum 44 milljörðum, er 8 milljarðar. En ef maður rýnir þetta betur, hvað kemur þá í ljós? Þetta er í raun og veru bara út af ónýttum fjárheimildum fyrri ára og þannig eru fleiri dæmi. Þetta eru frestanir á verkefnum sem eru ekki tilbúin, þetta eru ónýttar heimildir. Þetta eru ekki erfiðar ákvarðanir en svo koma þau hér og berja sér á brjóst og segjast vera að taka svo erfiðar ákvarðanir. Hvar eru erfiðu ákvarðanirnar? Þær er ekki hér að finna. Hvar er verið að rýna í hvað megi betur fara? Hvar eru allar aðhaldstillögurnar? Nei, þær eru ofan í skúffu af því að þær eru erfiðar. Hér er ekki verið að taka erfiðar ákvarðanir. Hér er verið að auka ríkisútgjöld en sagt að það sé verið að draga úr.
Það skondna er að þau vilja tala um prósentur en þau vilja ekki tala um prósentur þegar við erum að hækka kílómetraskattana um 15,9%. Þá vilja þau tala um að þetta sé bara rúmlega 1 kr. á kílómetra. Já, en það er nú bara þannig að miðað við meðalbifreiðanotkun eru þetta yfir 15.000 kr. á ári. Komugjöld; ég get alveg borgað aukalega komugjöld en fyrir þá sem mæta tvisvar til þrisvar, eldri borgara sem hafa borgað hér skatta allt sitt líf, eru þetta kannski 12.000–15.000 kr. á mánuði, bara þessi hækkun. Þegar hv. þingmenn koma hér og segja að það sé verið að spara 2 kr., eyða 1 kr. og spara 2 kr., ég man ekki alveg hvernig frasinn var, þá er það auðvitað ekki rétt vegna þess að eins og ég fór yfir eru aðhaldsaðgerðirnar, þessir 44 milljarðar, að hluta til bókhaldslegs eðlis. Þetta er bara forgangsröðun af því að endaniðurstaðan er meiri útgjöld en í fyrra. Það er ekki verið að spara miðað við í fyrra og auknir skattar á heimili landsins eru ekki 22 milljarðar. Í þessu fjárlagafrumvarpi eru þeir 37,5 milljarðar.
Tíminn er á þrotum og ég ætlaði að fara yfir hverja skattahækkun sem ég næ ekki en ég hvet fólk til að kynna sér raunverulega hvað er verið að leggja fram í þessum 37,5 milljörðum sem bitna á heimilum landsins. Því miður sjáum við líka að það er verið að lofa alls konar hlutum sem eru ekki inni í þessu þannig að útgjöldin eiga eftir að aukast, nema við gerum alvörutiltekt í meðförum þingsins. Þessi ríkisstjórn virðist ekki ráða við það þannig að ég hvet hv. fjárlaganefnd til að taka upp fjárlögin, fara ofan í stóru málaflokkana, draga úr ríkisútgjöldum (Forseti hringir.) og auka ekki skattbyrði á heimili landsins.