fjárlög 2027.
Herra forseti. Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Guðjónsdóttur fyrir fína ræðu. Varðandi aðhaldið eins og það kemur fram í frumvarpi til fjárlaga sem við ræðum hér til fjárlaga er einmitt að það verði dregið úr fjárfestingum um 25 milljarða, í fjárfestingarhlutanum. Svo kemur einmitt í ljós að þetta eru fyrst og fremst bara ónýttar fjárheimildir. Það er ekki í sjálfu sér efnislega verið að takast á við neina hluti. Síðan er áhugavert að sjá raunverulega að þessi fjárfestingarhluti þar sem dregið er úr um 25 milljarða — við sjáum svo sem að kannski stærsta dæmið er Landspítalinn, 8,9 milljarðar. Þar eru töluverðar fjárheimildir til fyrir. En þetta er fleira, þetta er í samgöngunum og víðar. Svo er það bara reksturinn, það á að hagræða upp á 18, sem er kannski það sem skiptir máli til lengri tíma. Það að fresta framkvæmdum eða nýta fjárheimildir betur er náttúrlega ekki alvöruaðhald sem slíkt. Þannig að það er áhugavert að skoða þetta. Ég spyr hvort hv. þingmaður taki ekki undir með þeim sem hér stendur að þetta sé svolítið léttvægt. Við þekkjum það svo sem áður að sá sem hér stendur sem formaður fjárlaganefndar dró úr fjárveitingum til Landspítala vegna þess að það var til fjármagn fyrir svo það hafði ekki áhrif. En þetta þarf að koma upp, það þarf að vera gegnsætt hvað þetta þýðir og aðalmálið er náttúrlega rekstrarkostnaðurinn.
Svo er það spurning sem snýr að krónutölugjöldum og hækkun um 5,2% sem er mótað hérna á meðan verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% eða er sem sagt það sem við ættum að vera að stefna að. Hvað gera sveitarfélögin þegar þau sjá að ríkið ætlar að hafa sínar forsendur 5,2% eða atvinnulífið og vinnumarkaðurinn?