fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Þetta er nefnilega alveg rétt. Hvað gera sveitarfélögin? Alla vega er ríkið ekki að ganga á undan með góðu fordæmi. Svo mæta forsvarsmenn þessarar ríkisstjórnar einnig og biðja einkafyrirtæki að halda að sér höndum með hækkanir en ríkið ætlar sko að fá allt sitt. Þetta er með ólíkindum og það liggur fyrir að þau eru að gera aftur sömu mistökin. Verðbólgan fór af stað út af þessu í fyrra; hún mun gera það aftur. Svo kemur hæstv. fjármálaráðherra og talar um að skuldir séu að aukast út af verðbólgunni. Hvernig væri að hann myndi bara hlusta á sjálfan sig og sjá hvað er búið að gerast á þessu ári til að gera ekki sömu mistökin aftur? Það er verið að gera nákvæmlega sömu mistökin, bara nákvæmlega eins. Hæstv. fjármálaráðherra benti á það að hann væri að ganga í takt við Seðlabankann, sömu orð og hann sagði í fyrra um gjaldskrárhækkanir. Hann sagði þetta líka í fyrra. Það er svolítið mikilvægur hlutur sem ég neita að trúa að hagfræðiprófessorinn viti ekki; að þetta gæti bara gengið ef ekki væri verið að auka útgjöld ríkissjóðs á sama tíma. Þá mögulega gæti hann nýtt þetta sem einhvers konar aðhald. En það er ekki í anda þessarar ríkisstjórnar að sýna aðhald á öðrum sviðum. Nei, hún er með þessar krónutöluhækkanir og á sama tíma að auka útgjöld og hækka skatta. Þetta er mjög slæm blanda. Við erum búin að finna fyrir þessu einu sinni og ég trúi varla að þetta verði raunin, að þetta eigi að ganga yfir landsmenn aftur.