fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sköruglega ræðu. Hún virðist ekki vera haldin neinum hallaleysisótta, eins og sumir í stjórnarandstöðunni sem hafa bæði boðað að draga úr tekjuöflunarleiðum sem frumvarpið boðar og síðan jafnvel viljað að bætt verði í útgjöld. Það hefur komið fram hér fyrr í umræðunni. Mér þætti fróðlegt að fá hér afstöðu hv. þingmanns, hvar hún vilji þá skera niður. Eru það hjúkrunarheimilin sem er verið að bæta í? Eru það kjör eldri borgara? Gott ef flokkurinn hefur ekki verið á móti því. Hvaða liðir eru það sem eru umtalsverðir þar sem Miðflokkurinn hyggst ná fram verulegum breytingum? Ég vil bara taka það fram, vegna þess að það var nefnt hérna í umræðunni, að við munum í fjárlaganefndinni taka allar tillögur málefnalega til skoðunar, hvaðan sem þær koma, því að við erum hér að ræða um fjárlög ríkisins og auðvitað eigum við að vera með opinn hug og taka við þeim tillögum, hvort sem þær eru um niðurskurð eða auknar tekjur, hvar er hægt að ná í auknar tekjur eða stækka kökuna. Þess vegna erum við með þetta starf í nefndinni. Það væri þarft ef hv. þingmaður gæti hér komið með einhverja tillögu sem munaði þá verulega um og gæti nýst í umfjöllun um málið.