158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að fá að svara þessari spurningu og taka þátt í því. Ég vona þá að hann meini það sem hann segir, að hann ætli að taka tillit til þess ef honum líst á tillögurnar. Ég ætla að byrja á því að segja að þetta snýr ekki að því að ég vilji engin ríkisútgjöld. Ég ætla t.d. að halda því hér fram að mér hefði ekki dottið í hug að skerða framlög til Ljóssins, það hefði mér ekki dottið í hug. Hins vegar er þessi ríkisstjórn algerlega að skila 0 í því að taka til í stóru málaflokkunum. Tökum eitt dæmi sem var í fréttum í gær. Einn bótaflokkur, einn: örorkulífeyriskerfið. Þar sjáum við að á sjö árum er flokkurinn búinn að tvöfaldast. Útgjöld ríkissjóðs til þessa málaflokks hafa tvöfaldast, hátt í 60 milljarða aukning. Ég held að það væri nær að skoða þessa stóru flokka — þetta er einn bótaflokkur — og velta fyrir sér: Hvað er að gerast? Jú, við fengum einhverja tölu frá ráðuneytinu og þá liggur það fyrir að fjölgun bótaþega er gríðarleg, fjölgun erlendra aðila á bótum er gríðarleg og ákveðnar þjóðir eru fjórum sinnum líklegri til að þiggja bætur frá íslenska ríkinu en Íslendingar. Það segir einhverja sögu. Það segir að við þurfum að skoða hvað er í gangi. Svo má taka hagræðingartillögurnar, sem voru í þúsundatali, inn í nefnd fjárlaganefndar og vinna eitthvað með þær. Þannig að við erum að tala um flokka með tugi milljarða sem eru gegndarlausir og stjórnlausir (Forseti hringir.) málaflokkar. Og í bónus þá myndi ég nú draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði og þar getur hæstv. formaður fjárlaganefndar náð sér í nokkra milljarða.