158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:51]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessar tillögur. Ég vil benda á að við í Flokki fólksins höfum einmitt óskað eftir því að það sé aukið gagnsæi hvað varðar málefni útlendinga, eins og mér heyrðist hv. þingmaður vera að ýja að að þyrfti að vera meira, og m.a. að skoða þá atvinnuþátttöku, framfærslu og fleiri þætti, líkt og Danir gera. Ég hef verið talsmaður þess vegna þess að það er jákvætt. En aðalatriði í stefnu okkar í Flokki fólksins, sem ég tel skipta máli, er að koma fólki, sem er ekki í virkni, í aukna virkni. Að reyna að nýta krafta þeirra sem eru komnir á tímabundna örorku þannig að þau skapi samfélaginu verðmæti með þátttöku sinni. Það gleður fólk. Ég held að það sé mjög jákvæð stefna og mér finnst að við þurfum að nálgast einmitt þennan hóp með jákvæðni og að auka virkni þess.

Auðvitað er ágætt að fara yfir alla hluti en mér finnst samt sem áður skorta nokkuð kjöt á beinin í þeim tillögum sem hafa komið fram í umræðunni hjá stjórnarandstöðunni. En allar tillögur eru vel þegnar og við í fjárlaganefndinni munum örugglega fara yfir tillögur hv. þingmanns eins og annarra til þess að þær nýtist þjóðinni til gagns.