158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[17:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmanni þótti skorta kjöt á beinið hjá einhverjum þingmönnum en mér heyrist samt hann vera sammála mér. Ég er ánægð að heyra að við séum sammála um að það þurfi að taka á þessum málaflokki, þ.e. útlendingamálum, sem eru í raun og veru inni í öllum málaflokkum. Það sem ég vildi hins vegar benda á, af því að nú á ég orðastað við hv. þingmann úr Flokki fólksins, er að í þessu frumvarpi sé ég hvergi neinn jólabónus. Þar erum við að tala um nokkra milljarða sem hann þarf alla vega að finna ef þið ætlið að standa við það loforð, nema þið ætlið að svíkja það eins og öll önnur loforð sem þessi ríkisstjórn hefur gefið. Þetta er nefnilega forgangsröðun.

Fyrst ég hef þennan tíma vil ég líka benda á, þar sem hv. þingmenn meiri hlutans, bara allir þingmenn meiri hlutans, hafa ítrekað komið hér upp og eru agalega ánægðir með bankaskattinn, að hann er aldrei settur í samhengi við neitt. Það er bara talað um hvað þeir hagnast. Svo er verið að tala um að það sé allt í lagi að skattleggja hagnað. Þið eruð ekki að skattleggja hagnað bankanna, þið eruð að skattleggja skuldirnar. Þannig er reiknireglan á þessu eða í raun og veru bara stærðin á efnahagsreikningnum. Í því samhengi vil ég benda á, af því að það er aldrei verið að tala um samhengið, að hagnaður bankanna jafngildir 1,7% hagnaði miðað við heildareignir og 12,4% arðsemi, sem er raunávöxtun upp á 8% í því vaxtaumhverfi sem við búum við, þar sem við getum nánast sett peninginn inn á bankabók til að fá þá vexti. Þannig að ég held að það sé eðlileg krafa (Forseti hringir.) að hv. þingmaður svari því: Hvað mega fyrirtækin í þessu landi hagnast áður en ríkissjóður kemur og ætlar að skattleggja það í drep?