158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:44]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Ég verð þó að segja að mér finnst svolítið sérstakt að tala um stöðugt rekstrarumhverfi þegar kemur að þessari ívilnun af virðisaukaskatti. Þetta hlutfall hefur sveiflast fram og til baka í gegnum árin. Það var nú þannig á sínum tíma, eins og hv. þingmaður ætti að vita, að þetta var 100% í Covid til að mynda. Ríkisstjórnin þá lækkaði þetta niður í 60% 2022 og niður í 35% 2023 og það var alltaf hugmyndin að lækka þetta í þrepum. Það er ekki sjálfgefið að vera með ívilnun frá virðisaukaskatti. Það verður áfram ívilnun frá virðisaukaskatti og fólk getur sótt um þá endurgreiðslu. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að þetta geti haft lítils háttar áhrif á byggingarkostnað. Við erum ekki að fara úr 100% í 0, við erum að fara úr 35 í 20. Það var farið úr 100 í 60 og úr 60 í 35 og fólk hafði alveg skilning á því að aðstæður hefðu breyst.

Ég vil þó segja að líklega stærsta einstaka breytingin sem þessi ríkisstjórn hefur gert í húsnæðismálahlutanum var til að mynda að fara í aðgerðir gegn misnotkun á Airbnb sem gerðu það að verkum að við erum í auknum mæli að sjá íbúðir fara annaðhvort á almennan leigumarkað eða í sölu til ungs fólks eða í styrkingu á hlutdeildarlánakerfinu sem gerir það að verkum að fólk getur sótt um hlutdeildarlán og fengið úthlutun. Þar var stórkostlegur vandi í samskiptum milli ráðuneyta m.a. sem gerði það að verkum að það var erfitt að skila fjármagni í rauninni á réttum tíma út í þessi úrræði. Það var leyst á tíma þessarar ríkisstjórnar og það úrræði hefur verið vel nýtt. Metfjöldi fólks hefur nýtt sér hlutdeildarlánaúrræðið og það virkilega skilar öllu. Við eigum líka að vera í þeirri vegferð sem ég veit að hófst á tímum fyrri ríkisstjórnar og er eitt af góðum verkefnum sem við getum unnið að í sameiningu og það er að fara í einföldun á byggingarreglugerð sem er líklega einn stærsti einstaki kostnaðarliðurinn fyrir utan vaxtakostnað hjá byggingarverktökum.

Hitt er síðan annað mál að við erum núna í því verkefni að loka þessari holu sem hefur verið í ríkisfjármálum til að draga úr umsvifum, minnka þenslu, (Forseti hringir.) minnka verðbólgu og draga úr vaxtakostnaði sem hefur veruleg áhrif á rekstrarumhverfi verktaka.