158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:22]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir gott og yfirgripsmikið svar á skömmum tíma. Ég held að það sé mikilvægt að við einbeitum okkur að sérstöðu Íslands í samstarfi við Grænland. Við erum sá nágranni sem getur nálgast það á jafnréttisgrundvelli. Nú er tími til að efla okkur í þessu samstarfi, samhjálp og stuðningi við Grænlendinga, að hefja það upp fyrir hið pólitíska dægurþras og tala einni röddu hér á Alþingi. Sú athygli nær langt út fyrir landsteinana. Sá stuðningur á að vera fyrirvaralaus.

Ég vil að svo búnu hvetja ráðherra til tvenns: Annars vegar að gera mögulega drög að verkáætlun þar sem við tökum nokkra verkþætti til skoðunar og mælum árangurinn af þeim. Þetta geta verið einstök verkefni á sviði viðskipta, mennta- og rannsóknartengsla eða félagslegra mála. Ég býð fram alla mína aðstoð við það og veit að ríkur vilji er hjá þingheimi til þess að leggja því lið.

Hins vegar vil ég í lokin eindregið hvetja hæstv. ráðherra til að eiga samtal við ráðherra í ríkisstjórn Grænlands um að koma á Norðurlandaráðsþing í Helsinki í lok október þar sem þeir hafa til þessa ekki séð sér fært, a.m.k. í tvö ár, að vera þar á meðal okkar og taka þátt í þinginu, hálfpartinn í mótmælaskyni við það að endurskoðun Helsingfors-sáttmálans hefur tafist. En þess þá heldur er svo mikilvægt að þeir komi og við getum þá lyft rödd þeirra og sýnt það og sannað að þeir standa sannarlega undir þeirri ábyrgð sem felst í því að taka þátt í Norðurlandasamstarfi og vera pólitískur leikandi á hinu stóra sviði.