158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:29]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég held að ég verði bara að spyrja hæstv. ráðherra aftur að sömu spurningu því ég fékk ekki svar. Spurningin er enn þá: Hver er staðan á umsókninni? Hvort sem hún er sú sama og hún var fyrir eða eftir: Hvernig lítur hæstv. ráðherra á stöðu umsóknarinnar? Hvað þýðir staðan sem er núna og var þá fyrir líka? Hvernig lítur hæstv. ráðherra á það? Hver er sú staða? Og ég fékk engin svör við spurningunni: Af hverju er ríkisstjórnin, hæstv. ráðherra, Viðreisn, að svíkja gefin kosningaloforð þess efnis að hækka ekki skatta?

Það að þurfa að hafa kjark til að standa með EES-samningnum — já, það þarf þess, en hann skortir hjá núverandi ríkisstjórn vegna þess að kjarkurinn snýst um það að standa með Íslandi og verja okkar hagsmuni, gæta hagsmuna Íslands með því að bæta hagsmunina á fyrra stigi, ekki að innleiða allt óbreytt. Hagsmunagæsla snýst ekki um það að beygja sig niður og taka á móti bókun 35.