fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Þetta var athyglisvert andsvar eða spurning því að mér fannst það eiginlega undirstrikast enn frekar að það er engin alvara af hálfu Miðflokksins um að standa með EES-samningnum. Það eru skýr (Gripið fram í.) skilaboð út í atvinnulífið. Ja, það eru skýr skilaboð út í atvinnulífið að Miðflokkurinn ætlar ekki að gera það og (Gripið fram í.) frekar að umgangast hann, eins og ég segi, eins og einhvern konfektkassa.
Ég ætla að svara spurningunni varðandi bankaskattinn. (Gripið fram í.) Ég ætla að svara henni og það er alveg rétt að ég sagði þetta á sínum tíma, alveg rétt. Ég vonaðist til þess, þegar hann var lækkaður á sínum tíma, að við sæjum þá áhrifin, að hann hefði haft raunverulega lækkun í för með sér en hann gerði það ekki. Við skulum ekki gleyma því að við erum með 866 milljarða af uppsöfnuðum halla síðustu átta ár. Það hefur engin ríkisstjórn verið með jafn mikinn niðurskurð og aðhald síðan Friðrik Sophusson var fjármálaráðherra hér á sínum tíma. Það er mikilvægast fyrir okkur í ríkisstjórninni að ná jafnvægi í ríkisrekstri og það er það sem við getum gert til þess að styðja Seðlabankann í því að lækka vexti og við getum tekið þátt í því að verðbólga hjaðni. Og við skulum ekki gleyma því að (Forseti hringir.) hallalaus fjárlög er það sem skiptir núna mestu máli (Gripið fram í.) til þess að ná stöðugu … (Forseti hringir.) — þannig að við getum farið að ná niður verðbólgu. Við skulum alveg hafa það á hreinu að tekjur ríkisins hafa verið stærri hluti þjóðarkökunnar, af vergri landsframleiðslu, árin 2014, 2015, 2018 og 2019. Og ég held að hv. þingmaður viti m.a. hverjir voru í ríkisstjórn þá.
(Forseti (KÁB): Forseti vill biðja hv. þingmenn að hafa hljóð í salnum meðan verið er að halda ræðu hér í pontu, öll framíköll og allt tal er mjög truflandi, vinsamlega.)