fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Íslendingar hafa frá stofnun lýðveldisins byggt varnir landsins á samstarfi við vina- og bandalagsríki. Við gerðum varnarsamning við Bandaríkin árið 1951 og erum stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu. Þetta samstarf er ein af grunnstoðum öryggis Íslands en varnarsamningurinn og aðild okkar að NATO svara ekki öllum þeim ógnum sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þau tryggja ekki ein og sér að sæstrengir, fjarskiptakerfi, hafnir, flugvellir og orkukerfi landsins séu nægilega varin. Þau sjá heldur ekki til þess að við eigum nauðsynlegar birgðir, örugg varafjarskipti eða getu til að halda stjórnsýslu og grunnþjónustu gangandi ef alvarleg krísa verður. Þetta eru verkefni sem við verðum að taka ábyrgð á sjálf eins og margir hafa bent á síðustu vikur. En ef við ætlum að efla eigin varnir og öryggisviðbúnað verður að liggja skýrt fyrir hvað það þýðir í raun. Hvaða innviði ætlum við að verja? Hvaða getu þurfum við að byggja upp og hvaða fjármuni erum við reiðubúin að leggja til?
Því vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvað felst raunverulega í því að Ísland taki aukna ábyrgð á eigin vörnum og öryggi? Hvar eru stærstu veikleikarnir og hvaða innlendu getu telur ráðherra brýnast að við fjármögnum og byggjum upp?