158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:37]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en nú förum við 20 ár aftur í tímann þegar hæstv. utanríkisráðherra, þá sem staðgengill þáverandi utanríkisráðherra, fór fyrir fjölmennri íslenskri viðskiptanefnd til Indlands. Þar opnaði hún sendiráð Íslands í Nýju-Delí, hitti m.a. forseta landsins og hvatti til aukinna samskipta og viðskipta milli ríkjanna.

Mig langar því að spyrja ráðherrann: Þegar hún lítur yfir þessi 20 ár, hvaða árangur telur hún mikilvægastan í samskiptum Íslands og Indlands og hvaða lærdóm getum við dregið af þeirri vegferð þegar kemur að því að efla hagsmunagæslu, viðskipti og pólitísk tengsl Íslands við ríki um allan heim?