158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Það er rétt, ég varð þess heiðurs aðnjótandi að hlaupa í skarðið fyrir þáverandi utanríkis- og forsætisráðherra, fór til Indlands og opnaði sendiráðið á sínum tíma. Síðan hefur tvíhliða samband Íslands og Indlands vaxið mjög. Við erum að sjá það á mörgum sviðum. Fyrst er náttúrlega til að taka nýlegan fríverslunarsamning, sem er gríðarlega mikilvægur, á milli EFTA-ríkjanna og Indlands, skiptir okkur miklu máli og kom til framkvæmda á síðasta ári. Við þurfum að fylgja því eftir. Hann felur í sér mikil tækifæri fyrir atvinnulífið, fyrir ýmis fyrirtæki hér heima sem við höfum á grunni okkar þekkingar. Ég horfi sérstaklega til sjávarútvegs annars vegar og orkumálanna og orkuþekkingar hins vegar. Indversk stjórnvöld hafa nú þegar hrint af stað átaki til að efla þekkingu og getu á sviði endurnýjanlegrar orku þar sem einmitt er verið að klukka okkur inn og Ísland hefur auðvitað mikið þar fram að færa. Á pólitíska sviðinu hefur samstarfið líka verið að aukast (Forseti hringir.) og það er aldeilis frábært að hafa indverskan sendiherra hér. Ég vil líka geta þess að ég hef þegar tilkynnt að ég muni fara til Indlands á næsta ári og taka þátt í ráðstefnu sem er haldin undir forystu forsætisráðherra Indlands.