158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:45]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég get heldur ekki látið hjá líða að spyrja hæstv. ráðherra, sem einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar, út í almenna stöðu fólksins í landinu og þær yfirlýsingar sem menn hafa gefið. Varaformaður Viðreisnar, hæstv. fjármálaráðherra, sagði þrýstingi létt af heimilunum. Gott fyrir Ísland, sagði hæstv. forsætisráðherra. Ég held að ég fari rétt með, ef ég vitna í hæstv. utanríkisráðherra, að hún hafi sagt, hún segir oft svo margt í einu: Við erum að gera þetta fyrir heimilin og fólkið í landinu. Þá vil ég spyrja: Er það að frysta barnabætur? Er það að hækka komugjöld um 100%? Er það að breyta lyfjaflokkun þannig að 500 milljónir séu teknar af sjúklingum? Er það að sjúkraþjálfarar og sjúklingar þurfi að greiða 1,2 milljörðum meira? 5,2% krónutöluhækkunin, eru það breiðu bökin sem eiga að taka hana? Mun það styrkja húsnæðismarkaðinn að lækka endurgreiðslurnar úr 35% í 20%? Og bankaskatturinn, sem hæstv. ráðherra hefur sjálfur sagt að fari til neytenda? Eru þetta breiðu bökin sem eiga að bera (Forseti hringir.) hallalaus fjárlög fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og fjármálaráðherra?