fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég er náttúrulega að tala við mjög reynslumikinn mann, ekki síst úr ríkisstjórn, sem veit að það er aldrei auðvelt að vera í ríkisstjórn og taka ákvarðanir. En það sem þessi ríkisstjórn er að gera er einmitt að taka ákvörðun sem ég saknaði á síðustu níu árum. Hvað sem hver segir þá er uppsafnaður halli síðustu átta ár 866 milljarðar. Við erum að skila fyrstu hallalausu fjárlögunum ári fyrr en ætlað var. Hefur það ekki erfiðar ákvarðanir í för með sér? Jú. Við erum að reyna að taka þessar erfiðu ákvarðanir núna, ekki alltaf vera að ýta þessu á framtíðarkynslóðir eða bara á næstu ríkisstjórnir. Mér finnst enginn bragur á því. Það er örugglega hægt að gagnrýna eitt og annað í þessum fjárlögum, já, já. En stóra myndin er sú að við erum að gera þetta með heildarhagsmuni í huga, ekki síst heimilanna, fyrirtækjanna og atvinnulífsins, þannig að það verði einhver stöðugleiki, það verði lægri verðbólga og við getum séð fram á vaxtalækkunarferli hjá Seðlabankanum. Mér finnst skipta máli að við sýnum Seðlabankanum traust með ábyrgum aðgerðum. (Forseti hringir.)
Ég vil geta þess að það var til að mynda ekkert skorið niður á árunum 2014 til 2022 þar sem m.a. Framsóknarflokkurinn (Forseti hringir.) var meira og minna í stjórn, meira og minna. Það var ekkert skorið niður, það var ekkert aðhald. Þetta er bara alltaf það sama. (Forseti hringir.) Það er ósköp auðvelt að vera í pólitík ef ákvarðanir eru teknar þannig að það er bara næstu kynslóða eða næstu ríkisstjórna að borga reikninginn. (Forseti hringir.) Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að gera það. Já, það eru ýmsar óvinsælar ákvarðanir sem fylgja þessu en við ætlum að stoppa hallann og skila hallalausum fjárlögum.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á ræðutímann, hafa í huga hvað hann er langur hverju sinni.)