fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það er svo sem af mörgu að taka. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt innlegg. Ég vildi kannski byrja á því, af því að við erum að tala um fjárlögin, að spyrja hæstv. ráðherra hvernig á því standi að við lesum um það í blöðum — minnisblöð eru send á félagasamtök en hv. fjárlaganefnd fær ekki upplýsingar um það hvernig 43 milljörðum er varið í varnartengd verkefni. Við byrjuðum að biðja um þetta í október á síðasta ári og það er með ólíkindum að við getum ekki fengið þetta. Ég vil kannski byrja á þeirri spurningu. Mér fannst hæstv. ráðherra heldur ekki svara því af hverju Viðreisn lofaði því að hækka ekki skatta fyrir kosningar. Stóð aldrei til að efna það eða af hverju var það ekki gert? Því það er sama loforð og kom frá Samfylkingunni og gott ef ekki Flokki fólksins líka.
Það er augljóst að það er órætt hvernig ríkisstjórnin ætlar að ganga frá niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þó að því hafi ekki verið svarað skýrt áðan þá gat ég ekki skilið hæstv. ráðherra á annan veg en þann að hann telji að Ísland sé umsóknarríki, sem eru náttúrlega miklar fréttir. En það var eitthvað sem hæstv. ráðherra samdi um við Evrópusambandið og kom okkur sem höfum setið í þessum stól mjög á óvart. En ef við erum umsóknarríki og menn ætla ekki að afturkalla umsóknina, ætla menn þá að fá greidda IPA-styrki sem umsóknarríki fá alla jafna? Það er bara almenn regla. Tyrkland hefur t.d. fengið hundruð milljarða í IPA-styrki en Evrópusambandið hætti að greiða Íslandi IPA-styrki, aðlögunarstyrki, þegar umsóknin var dregin til baka. Ef umsóknin er í gildi, skuldar Evrópusambandið þá ekki íslenska ríkinu gríðarlega mikið af umsóknarstyrkjum? Eða hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera í því?