fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þetta eru miklar fréttir varðandi 43 milljarðana því að fjármálaráðuneytið hefur sagt að utanríkisráðuneytið sitji á þessum upplýsingum og vilji ekki að nefndin fái þær. En gott og vel, guð láti gott á vita. Ráðherra svaraði ekki spurningunni um það af hverju því var lofað að hækka ekki skatta. En látum það liggja milli hluta.
En þetta er ekki útrætt varðandi stöðu Íslands. Ég vek athygli á því að þó að ýmislegt hafi nú lekið úr utanríkisráðuneytinu — og utanríkisráðuneytið m.a. brotið lög til að koma höggi á ákveðna einstaklinga, upplýsingalög — þá er fyrrverandi ráðherra með lögmann í því að reyna að fá gögn um það sem gerðist á sínum tíma þegar umrætt bréf var sent. Ef við erum umsóknarríki þá er það ákveðin staða. Þá er væntanlega enn í gildi samningur Íslands við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um svokallaða IPA-styrki eða aðlögunarstyrki. Ég vek athygli á því að Tyrkland sem sótti um aðild að Evrópusambandinu — ég hélt að það væri nú steindautt mál. Tyrkland sótti um aðild þegar ég var í menntaskóla, ekki á lokaári einu sinni, og hefur fengið gríðarlegar fjárhæðir í IPA-styrki af því að það er umsóknarríki. Við hljótum að vilja fá að vita hvað gerðist í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hér og ég veit að fyrrverandi ráðherra hefur gengið svo langt að fá lögmann til að reyna að fá gögnin sem hann var að vinna eftir á sínum tíma. Ég bara hvet hæstv. ráðherra til að upplýsa um það, það er mjög mikilvægt.