158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Forseti. Ég vil bara aðeins nefna þetta varðandi 1,5%. Utanríkismálanefnd og fjárlaganefnd voru upplýstar um greiningu fjármála- og utanríkisráðuneytisins á þeim grunnramma sem liggur undir 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna. Fjárlaganefnd hefur verið boðinn fundur um 1,5% greininguna og það var gert í kjölfar þess að sameiginlegt minnisblað var lagt inn í nefndina í vor. Þetta eru þær upplýsingar sem ég hef og ef ekki þá förum við bara í að afla þessara upplýsinga. En þetta er það sem ég hef hér hjá mér, að sameiginlegt minnisblað frá utanríkisráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu hafi verið sent til utanríkismálanefndar og fjárlaganefndar og það var óskað eftir frekari upplýsingum sem var boðið upp á á fundi með fulltrúum beggja ráðuneyta. Ef það er ekki nóg þá er sjálfsagt að fara yfir þetta aftur. (Gripið fram í.) En þetta er það sem er, sýnist mér, líka í málaskrá ráðuneytisins.

Aðeins að hinu. Ég held að það sé kominn tími til að við horfum fram á við. Það er alveg skýrt hver niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni var. Stundum finnst mér eins og stjórnarandstaðan geti ekki komist frá þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eru þau kannski hrædd við að fara að ræða önnur mál, að það sé kannski bara þannig að keisarinn sé ekki í neinum fötum?