fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði að nota þennan tíma í að spyrja hæstv. ráðherra út í 1,5%, þessa 2 milljarða eða 2,4 til varnartengdra mála, hvort það væri inni í því, hvar við værum stödd, hvaða önnur verkefni, m.a. með NATO sem við hugsanlega þyrftum að fjármagna eða leyfa, væru í gangi. En ég verð bara því miður að láta þessa spurningu liggja og grípa boltann.
Það gengur auðvitað ekki þegar það er þjóðaratkvæðagreiðsla, og ríkisstjórn sem segist ætla að virða þá niðurstöðu, að koma með útúrsnúninga og halda því fram að bréf sem var sent og augljóslega segir að staðan sé óbreytt, þ.e. að um einhvern óendanlegan tíma eigi að byggja stöðu Íslands á vinnu sem var unnin 2009 eða 2010 þegar hér var efnahagskrísa og bankahrun. Er það grunnurinn að því að einhvern tímann, hugsanlega, kannski, ef til vill — ég vona aldrei — vilji þjóðin, og það væri meiri hluti í þinginu og samstaða í ríkisstjórn, ganga í Evrópusambandið? Á þá að byggja á vinnu frá 2009 og 2010? Það hlýtur að vera laukrétt að bregðast við núna með því að draga umsóknina til baka; það sé að virða niðurstöðu þjóðarinnar. Og horfa síðan til þess sem ráðherrann fór yfir í sinni ræðu, að hér er breyttur heimur og við þurfum að horfa til annarra átta. Ég skrifaði grein sem ég held að hafi birst í gær eða fyrradag í Morgunblaðinu þar sem ég var að hvetja ríkisstjórnina og utanríkisráðherra til að horfa til þess að stofna hér fríverslunarsvæði norðurslóða með Færeyingum og Grænlendingum á grundvelli hugmyndarinnar um Hoyvíkursamninginn, en þó alveg nýtt samkomulag. Og horfa enn lengra, til landa eins og Kanada, Bretlands og Norðmanna (Forseti hringir.) sem deila þessu svæði með okkur, því allar þjóðir heims, öll stórveldi heims, (Forseti hringir.) hvort sem það er Bandaríkin, Rússland eða Kína eða Evrópusambandið, horfa vonarhýrum augum til þessa svæðis.