fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að vitna hérna í landskjörstjórn. Hvað gerist ef meiri hluti svarar nei? Þá hefjast ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ísland verður ekki aðildarríki að Evrópusambandinu. Það er þó ekki útilokað að Ísland hefji aðildarviðræður einhvern tímann í framtíðinni. Þetta segir landskjörstjórn, ef nei verður svarið. Þetta er val hjá stjórnarandstöðunni að hjakka í þessum hjólförum og það er val sem ég virði. Ég bara hvet hana til að koma með okkur. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir að átta sig á að heimurinn er gjörbreyttur og hafa skrifað þessa fínu grein. Það er kominn tími til að menn átti sig á að tíminn er breyttur. Við verðum að vera með ískalt mat hverju sinni á því hvernig við beitum okkur og hvernig hagsmunum Íslands er best borgið. Ég veit að hann hlustaði líka af athygli á ræðu mína í gær þar sem ég m.a. fór yfir að Kanada, Ísland, Noregur og Bretland ættu að huga að sameiginlegri hagsmunagæslu á ákveðnum sviðum, kannski á sviði tollamála í tengslum við Evrópusambandið eða líka til þess að verja sig gagnvart alls konar viðskiptaþvingunum annars staðar frá. Þetta er það sem við erum að hugsa. Við erum löngu farin af stað með umræðu og ég veit að hv. þingmaður hlustaði líka áðan, t.d. varðandi Grænland. Það eru bara önnur verkefni sem Grænland er að fást við núna. Það liggur fyrir alveg skýr vilji, undirstrikaður af forsætisráðherra okkar frá 2025, fyrir því að fara í einmitt verkefni á sviði fríverslunar og viðskipta við Grænland og líka Færeyjar. En ég viðurkenni það alveg að sambandið núna við Færeyjar er frekar kalt af því að fiskveiðisamningar eru lausir. Það er ekki samningur á milli Íslands og Færeyja núna og við erum að nálgast þetta í mikilli samvinnu við SFS út frá íslenskum hagsmunum. Þá vil ég líka að Hoyvík sé tekið inn í það mengi (Forseti hringir.) til að styrkja íslenska hagsmuni. Við erum því úti um allt að passa upp á íslenska hagsmuni í samvinnu við atvinnulífið, í samvinnu við okkar nánustu bandamenn og það er ýmislegt sem við getum gert áfram. Við erum að fara í þessi verkefni. Þið getið talað um þjóðaratkvæðagreiðsluna áfram en ég er að fara í þessi verkefni fyrir Ísland.