158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:07]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Hugsum okkur litla 10 ára telpu. Hún mætir í skólann á hverjum morgni en hún nær ekki að fylgja hinum börnunum. Hún á erfitt með að lesa, hún á erfitt með að einbeita sér og hún er farin að trúa því að hún sé einfaldlega ekki nógu góð. Hún horfir niður þegar kennarinn spyr spurninga. Hún reynir að láta lítið fyrir sér fara. Hún hættir smám saman að leika við hin börnin. Kvíðinn vex. Fólkið í kringum hana sér vandann og sækir um greiningu, sækir um aðstoð en svo tekur biðin við. Vikurnar verða að mánuðum. Á meðan bíður lífið hennar ekki. Bernskan bíður ekki, kvíðinn bíður ekki, skólinn heldur áfram en litla telpan, hún situr eftir.

Virðulegi forseti. Þegar við ræðum fjárlög hættir okkur til að tala um milljónir og milljarða. En á bak við hverja krónu, hverja tölu er manneskja eða jafnvel lítið barn. En skoðum nokkrar tölur í þessu fjárlagafrumvarpi. Hér erum við að leggja til að 1,4 milljarðar kr. fari í að styrkja varanlega umgjörðina utan um börn í viðkvæmri stöðu. Þar af fer 1 milljarður til þess að styrkja rekstur Barna- og fjölskyldustofu og 400 millj. fara til barna í viðkvæmri stöðu. Við setjum jafnframt viðbótar 800 millj. kr. í að styrkja þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Framlagið kemur til viðbótar 3 milljörðunum sem veittir voru í fjárlögum líðandi árs á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu á þjónustu við börn með fjölþættan vanda frá sveitarfélögum. Við setjum einnig 400 millj. kr. til stuðnings við börn af erlendum uppruna og áfram munu 700 millj. kr. renna í farsæld barna. Þessu til viðbótar leggjum við nú til nýjar 350 millj. kr. í að stytta biðlista og efla starfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Það er með öllu óásættanlegt að barn bíði mánuðum saman eftir nauðsynlegri greiningu. Börn og biðlisti; þetta eru tvö orð sem eiga ekki heima í sömu setningu. Við ætlum því að stytta þessa bið og við ætlum að grípa börnin fyrr, ekki þegar þau eru fallin. Við ætlum að grípa þau áður en þau falla.

Við ætlum líka að halda áfram að vinna að byggingu nýs meðferðarheimilis í Garðabæ. Jafnframt er ég að leggja til mestu breytingar á barnaverndarlögum á síðastliðnum 20 árum. Ég mun einnig leggja til fyrstu aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn fátækt barna. Verkefnin verða varla stærri en svo.

Frú forseti. Íslenska framhaldsskólakerfið stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Nær 99% allra ungmenna innritast nú í framhaldsskóla og árgangur þessa vetrar er óvenjufjölmennur. Þá hefur fötluðum nemendum á starfsbrautum fjölgað mikið undanfarin ár sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Enn eru of margir framhaldsskólar með halla á sínum rekstri. Í þessu frumvarpi koma hins vegar nýjar 300 millj. kr. inn til að mæta nemendafjöldanum. Framhaldsskólarnir hafa um árabil búið við miklar aðhaldskröfur á sama tíma og stórir árgangar hafa komið inn í skólana. Það aðhald byrjaði svo sannarlega ekki hjá þessari ríkisstjórn. Við ætlum að setja 55 milljarða í framhaldsskólana á næsta ári en fjármagn til reksturs og fjárfestinga er það sama í fjárlagafrumvarpinu og er á þessu ári. Sé eingöngu litið til fjármagns til rekstrar þá lækkar það einungis um 1,2% á milli ára. Við þurfum því að fara vel með fjármunina og við þurfum að nýta þá skynsamlega. En ég segi það alveg skýrt: Betri nýting má aldrei verða fínt orðalag yfir verri þjónustu við nemendur. Hins vegar er mikilvægt að líta til framtíðar og sé litið til fimm ára tímabils fjármálaáætlunar þá munu fjárveitingar á hvern framhaldsskólanema verða svipaðar í lok áætlunar og nú árið 2027.

Talandi um framtíðina þá þurfum við að ná betur utan um börnin okkar. PISA-niðurstöðurnar bera þess glöggt vitni. Á næsta ári verður settur meiri kraftur í útgáfu námsgagna og í kennslu raunvísinda. Þess vegna munu nú fara samanlagt 675 millj. kr. í námsgögn og í áherslu á STEM-greinar. Önnur eins innspýting í námsgögn og í raunvísindi hefur ekki sést lengi. Á sama tíma höldum við áfram stórsókn í verknámi. Ný aðstaða í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti verður opnuð nú í vetur og áfram er unnið að stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Verkmenntaskólans á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Ísafirði. Enn stendur til að stækka Tækniskólann í einum áfanga í stað tveggja og loks er Þjóðarhöllin fullfjármögnuð upp að 17 milljörðum kr. (Forseti hringir.) en á næsta ári verða 1,2 milljarðar lagðir í verkefnið. Þar mun rísa glæsileg aðstaða fyrir landsliðið okkar, íþróttafólkið, skóla og almenning. Markmiðið er að höllin verði tilbúin fyrir heimsmeistaramótið í handbolta árið 2031.

Frú forseti. Fjárlög eru ekki bara talnadálkar. Þau eru yfirlýsing um gildismat okkar og stefnu um það að sérhvert barn skiptir máli. (Forseti hringir.) Með þessum fjárlögum vil ég því segja við litlu stúlkuna tíu ára gömlu sem ég minntist á í byrjun míns máls, og við öll börn í hennar stöðu, að við ætlum ekki að láta þau bíða ein í myrkrinu. (Forseti hringir.) Við ætlum að taka utan um börnin og gefa þeim tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Það er samfélagið sem ég vil byggja og það er framtíðin sem þessi ríkisstjórn ætlar að berjast fyrir.

Frú forseti. Ég biðst innilega afsökunar hvað ég las — nei, herra forseti, afsakið — þetta hægt hérna í byrjun.

(Forseti (BergÓ): Hvort sem það er herra eða frú forseti þá viljum við biðja hæstv. ráðherra að virða tímamörk, rétt eins og þingmenn.)