158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:16]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir spurningarnar. Hann er náttúrlega alltaf með puttann á púlsinum, það er ekki sökum að spyrja. Það er allt rétt sem hv. þingmaður segir: það eru verkefni að vinna hvað lýtur að PISA. Við erum hér með tíu aðgerða áætlun til að koma til móts við börnin okkar og ég ætla ekki að tíunda það því að hv. þm. Jón Pétur Zimsen var með mér í gær þegar við vorum að kynna niðurstöðurnar og þekkir það mjög vel.

Þegar við erum að tala um námsgögnin, jú, það verða um 380 milljónir af þessu fé, sem ég er að fara að setja í námsgögn, sem fara í námsgögn til grunnskólanna. Það sem hefur verið að gerast upp á síðkastið og þess vegna eru kannski tölurnar ekki að breytast svo mikið milli ára og í fjármálaáætlun, auðvitað verður breyting í fjármálaáætlun ef þurfa þykir. En staðreyndin er sú að það mun ekkert barn verða skilið eftir og við munum greiða sömu krónutölu fyrir öll börn og við munum greiða fyrir öll börn eins og við höfum gert hingað til. Það liggur alveg fyrir. En það hafa komið inn óvenjustórir árgangar barna og það er talið að frekar muni þeim fækka en fjölga. Það er kannski þess vegna sem þessir útreikningar hafa verið eins og þeir eru. En við erum að fá hér inn um 600 milljónir sem koma til móts við þær ríflega 700 milljónir sem hv. þingmaður er að benda á. Ég held að þegar upp er staðið séum við á góðum stað. Við ætlum núna að taka saman höndum í hagræðingu og betra skipulagi þannig að við munum ekki standa höllum fæti á eftir. Ég tel að það muni ekki verða svo. En hagræðingarkrafa er til staðar upp á 1,2%, hér eins og annars staðar, og við munum standa hana af okkur og ég ber lítinn kvíðboga fyrir því ef satt skal segja.